19. júní - 19.06.1952, Qupperneq 36
M(irgrét Eiriksdóttir
dr. Franz Mixa. Hann var mjög áhugasamur og
nákvæmur.
— Og síðan hélduð j^ér til útlanda til frekara
náms. Ég hef heyrt, að þér hafið stundað nám
hjá hinni frábæru ensku tónlistarkonu, Kathleen
Long? Hún er víst afburða kennari?
— Já, ég fór til Lundúna árið 1936. Fór í
heimavistar-kvennaskóla. Þar var músikk-kennari,
miss J. Moss, sem ég naut kennslu hjá, meðan ég
leitaði fyrir mér að góðum kennara. Skömmu síð-
ar hóf ég nám hjá þekktum kennara, York Bo-
wen. Hjá honum var ég í nokkra mánuði, en inn-
ritaðist jrá í Konungalega músikk-Academíið í
Lundúnum, en þar var York Bowen kennari, og
var ég nemandi hans, þar til stríðið skall á, að
undanteknum nokkrum mánuðum, sem ég dvaldi
hér á landi. í stríðsbyrjun hélt ég heim og stund-
aði kennslu hér lieima í 3 ár. Þá fór ég aftur til
útlanda og heimsótti kunningjafólk mitt í Glas-
gow. Þetta fólk liafði mjög mikinn áliuga fyrir
klassískri tónlist, og umgengst mikið músíkanta.
Meðal annarra þekkti það hinn fræga skozka
píanóleikara, Lamond. Kunningjafólk mitt kom
því til leiðar, að ég naut kennslu Lamonds um
nokkurt skeið. Hann var nemandi Franz Lizts.
— Það má kallast stór viðburður í lífi ungrar
tónlistarkonu, að njóta kennslu liins frægasta
píanóleikara heimsins. Hvernig hagaði sá mikli
meistari hljóðfærisins kennslunni?
— Kennslustundirnar hjá Lamond voru oft all-
óvenjulegar og sérkennilegar. Ég átti að vera hjá
honum klukkustund í einu. En þessi eina klukku-
stund varð oft að mörgum — allt að fjórum tím-
um. Hann talaði mikið við mig, og spilaði mikið
fyrir mig, oftast Beethoven, en einnig Bach, Cho-
pin og aðra gamla meistara. Ég heyrði hann
aldrei spila „moderne" tónlist. Þessar einkenni-
legu kennslustundir liðu fljótt. Á mig sem nem-
anda reyndi lítið. Ég hlustaði og hlustaði á meist-
arann, tal hans og tóna, — og það var auðvitað
ágæt kennsla. Lamond var J)á rúmlega 74 ára að
aldri. Ég held, að hann hafi verið einmana, þrátt
fyrir frægðina. Líkast var, sem lionum væri nauð-
syn á að tala við einhvern. Hann virtist lifa mjög
óbrotnu lífi. Heimili hans var eins og gerist og
gengur hjá alþýðufólki. Já, það er gaman að geta
sagt, að maður hafi verið hjá Lamond. En sá
kennari, sem ég met mest, er Kathleen Long.
— Já, ég hef heyrt, að straumhvörf hafi orðið
í listtúlkun yðar eftir að Jrér hófuð nám hjá
henni.
— Undir handleiðslu hennar fanns mér ég
Jnoskast mjög mikið. Ég varð sjálfstæðari. — En
einkennileg urðu tildrögin að kynnum okkar
Kathleen Long og því, að ég hóf nám hjá henni.
Ég liafði verið staðráðin að reyna að ná fundum
Myra Hess, þegar ég kæmi til Lundúna og ef
mögulegt væri, að fá tilsögn hjá lienni. Hún er
ein af þekktustu píanóleikurum Englendinga og
mjög dáð í heimalandi sínu og víða annars stað-
ar. En oft breytast áætlanir og ráðagerðir.
Viku áður en ég fór til Lundúna var Kathleen
Long á ferð hér heima. Kom hún hingað á veg-
um Tónlistarfélagsins og hélt hér nokkra kon-
serta. Ég hlustaði á liana, og varð svo snortin af
leik hennar, að ég gat vart um annað hugsað. Ég
ákvað strax, að ná tali af henni áður en ég færi
til Englands, og biðja hana að taka mig í tíma.
Dag einn skundaði ég niður á Hótel Borg, þar
bjó hún, og sagði henni frá áhugamáli mínu. Hún
tók mér ákaflega vel, var elskuleg og Ijúfmann-
leg. „Við getum talað um Jaetta í London,“ sagði
hún. Síðan fór ég utan, og hitti hana skömmu eft-
ir að hún kom frá íslandi. Hún var mjög hrifin
af móttökunum Iiér og áhuga fólks á góðri tónlist.
Kvöld eitt hélt hún veizlu fyrir vini sína og kunn-
ingja. Bauð hún mér í veizluna, og var framúr-
skarandi alúðleg við mig. Eftir nokkrar vikur hóf
ég nám við Royal College of Music, og var Katli-
leen Long kennari minn Jrar. Undir handleiðslu
hennar var ég nær 3 ár. Hún er afburða kennari
og mikill píanóleikari. Ég dái hana og virði.
— Og hvenær komuð Jrér fyrst fram opinber-
lega á hljólnleikapalli?
22
19. JÚNÍ