19. júní - 19.06.1955, Blaðsíða 39
Hluti af veðurkorti 12. mai 1955. — H.cð yfir Grænlandi, lægð við Noveg. Hvöss norðlæg átt á íslandi. Tölurnar sýna loftþrýsting-
inn og strikin nteð fönunum vindinn. Línurnar eru jafnþrýsti línur.
og sama stað væri sá sami í allar áttir, upp og nið-
ur, austur og vestur. Við skulum hugsa okkur
lægðarmiðju, þar er loftþrýstingurinn tiltölulega
lítill, alls staðar utanvert við lægðina er loftþrýst-
ingurinn meiri og því leitar loftið undan þrýst-
ingnum inn að lægðarmiðjunni. Ef jörðin stæði
kyrr í heiminum mundi loftið streyma inn í lægð-
ina og þrýstingsmunurinn fljótlega verða úr sög-
unni, en snúningur jarðar hefur þau áhrif, að loft-
ið beygir af leið sinni, — til hægri hér á norður-
hveli, en til vinstri á suðurhveli. Niðurstaðan verð-
ur sú á norðurhvelinu, að vindurinn blæs kringum
lægðina, þannig að maður, sem snýr baki í vind-
inn hef'ur lægð á vinstri liönd, en hæð til hægri.
Nú getum við aftur hugsað til Norðlendinga, sem
fá súld norðan úr íshafi með norðanáttinni og
setja hana réttilega í sanrband við „hæð yfir Græn-
landi". Snúi Jreir bakinu í norðanáttina, Iiafa þeir
óneitanlega Grænland á hægri hönd. Sunnlend-
ingurinn verður oft óþyrmilega fyrir barðinu á
suðaustanáttinni. Snúi hann baki í vindinn finnur
hann út, að lægð sé suðvestan við land, en loft-
þrýstingur hærri í norðaustri. Lægð, sem nálgast
suðvestan úr hafi, er jrví ekki alltaf aufúsugeStur,
þó að hún beri með sér hlýrra loft en það, sem
kemur norðan úr höfurn. Þannig ráða hæðir og
o o
lægðir fyrir vindi og veðri, en hins vegar er erfið-
ara að lienda reiður á þeim lögum, sem ráða fyrir
hæðunum og lægðunum, myndun þeirra og hreyf-
ingu og því er það, að veðurspáin bregzt stundum.
Hannyrðamenn í Kasmír
I Srinagar, höfuðborginni í Kasmír, virðist ýmsu vikið við frá
því, sem við eigum að venjast. 2000 manns hafa þar fasta atvinnu
við alls konar handunninn útsaum, í ull og silki, allt saman
karlmenn, og eru fingrafimir mjög. 3500 vefa teppi, sem eru
heimsfræg. Allir vefararnir eru karlmenn.
Aftur á móti er elzta skáldverk, sem til er á kasmíri, máli þessa
þjóðflokks, talið vera ort af konu. I'að er heimspekilcgt kvæði og
heitir Lalla-Vakyani.
Heimsþing mæðra
verður haldið í júlí í sumar. Akvörðun um það var tekin á
fundi W. I. D. F. í Genf 9.—13. febrúar 1955. Fundarstaður cr
ekki ákveðinn enn.
Ásta Magnúsdóttir er sögð vera fyrsta íslcnzka konan, sem
kom upp í flugvél. I’að var 7. sept. 1919.
Síðastliðinn vetur var íslenzk listakona, Ólöf Pálsdóttir, sæmd
gull-heiðursmerki listaháskólans í Kaupmannahöfn, fyrir högg-
myndina Sonur. Tveir íslendingar hafa áður fengið þessi verð-
laun: Albert Thorvaldsen og Sigurjón Ólafsson.
19. JÚNÍ
25