19. júní - 19.06.1955, Síða 44
/------------------------------------------—N
J Ó H A N N SIGURJÓNSSON:
íslenzk þjóðvísa
Hann kotn ásumarkvöldi
hinn fagri farandsveinn
og liesturinn hans hviti
er ei sem annar neinn.
Entiþá heyri ég þann hófdyn mér i hjarta.
Höfði strauk við liönd mér
hans lwíti ferðajór.
Ég kvaddi hann með kossi
eins og kœran vin sem fór.
Ennþá heyri ég þann hófdyn mér í hjarta.
Og margt kom siðan manna,
eti ég man þó ekki neinn,
því engitin liafði augu
sem hinn ungi farandsveinn.
Ennþá heyri ég þann liójdyn mér i hjarta.
H. B. B. íslenzkaði.
V___________________________________________)
Um þetta leyti, 1871, var hér á ferð Bojesen
jústitsráð, faðir frú Olufu Finsen — fyrstu lands-
höfðingjafrúar á íslandi. Frú Melsted hitti hann
að máli á heimili tengdasonar hans, Hilmars Fin-
sen. Kvennaskólamálið bar á góma og hét Bojesen
frú Melsted, að styðja málið, þegar hann kæmi
heim til Danmerkur. Þetta gerði liann með ráðum
og dáð, og beitti sér fyrir samskotum í Danmörku.
Árið áður, 1870, hafði frú Melsted farið til útlanda
til að vekja áhuga á stofnun kvennaskóla á íslandi.
Þótt árangurinn yrði þá minni en hún hefði kosið.
naut málið þess nú, svo að alls söfnuðust í Dan-
mörku 7—8000 kr. Ágústa systir frú Melsted var þá
búsett í Edinborg. Hún safnaði og fé til skólans.
Eitthvað safnaðist í Englandi.
Frú Melsted var stórhuga. í ávarpi því, sem sent
hafði verið út, var gjört ráð fyrir þriggja ára nárni.
Skyldi skólinn standa yfir í 9 mánuði ár hvert.
Kenna átti stúlkum alls konar kvenlegar hannyrð-
ir, heimilisstörf og bókleg fræði. Skólinn átti að
innræta nemendum áreiðanleik og alla skynsam-
lega sparsemi.
Nú þótti frú Melsted og nefndinni svo komið
með skólamálið, að tími væri til að hefjast lianda.
Leitar frú Melsted nú til þriggja manna, Péturs
biskups Péturssonar, Bergs amtmanns Thorberg
og yfirdómara Magnúsar Stephensen, og biður um
álit þeirra á málinu. Þeir svara með bréfi (dags. 25.
apr. 1874). Leggja þeir til, að skólinn verði stofn-
aður sem fyrst í smáum stíl. Að Thoru Melsted
verði einni falin stjórn skólans, en hún taki sér
stundakennara eftir þörfum. Skólinn byrji 1. okt.
ogljúki 14. maí. Námsmeyjar læri kvenlegar liann-
yrðir og í bóklegum greinum skrift, íslenzku,
reikning og dönsku. 1. okt. 1874 mun Thora Mel-
sted hafa talið annan merkasta dag ævi sinnar.
Þann dagsetti hún fyrsta kvennaskólann í Reykja-
vík. (Fyrsta kvennaskóla í landi voru).
Húsnæði skólans var hús þeirra Melsteðlijóna,
lítið timburhús við Austurvölh Húsið var ekki
ætlað til skólahalds. Það rúmaði aðeins fáa nem-
endur, enda voru þeir fyrsta veturinn aðeins 9 að
tölu. Mun ekki liafa verið unnt að veita fleirum
viðtöku. En brátt skeður það, fyrir áhuga þeirra
Melsteðshjóna, sem tryggir skólanum tilveru og
vaxtarskilyrði.
Páll Melsteð er, þegar hingað er komið sögu,
árið 1878, orðinn hálfsjötugur, en fyrir áeggjan
konu sinnar afræður hann, og þau lijón bæði, að
láta rífa litla húsið og byggja í staðinn stórt hús á
þeirra tíma mælikvarða, er nægt geti skólanum til
frambúðar. Til þess að geta þetta, urðu þau hjón-
in, sem voru efnalítil, að hleypa sér í stórskuldir,
eða því sem nemur 3/ af \ erði hins nýja húss. Eins
og fyrr er getið, er Páll Melsteð rúmlega hálfsjö-
tugur og Tlióra Melsteð á 55. ári, þegar í þetta er
ráðizt. Tekjur Melsteðs munu hafa \ erið litlar og
óvissar: ritstörf, málfærsla og stundakennsla við
Latínuskólann. Styrkur sá, er skólinn hlaut, var
svo við neglur skorinn, að ekki \ ar þess að vænta,
að hann gæti borgað húsaleigu, er þurfti til að
borga með vexti og afborganir af húsinu. En eitt
skorti eigi: ást og trú á lnigsjón þeirra lijóna um
menntun íslenzkra kvenna, þess vegna var í þetta
ráðizt — þrátt fyrir öll vandkvæði. A þetta varð að
hætta fyrir hið unga „fósturbarn" þeirra, kvenna-
skólann.
Fyrstu tvo veturna, sem skólinn starfaði, hefur
hann eigi annað rekstursfé en vextina af skóla-
sjóðnum og 400 kr., er tvær danskar stofnanir hafa
lofað að styrkja hann með fyrstu árin. Thóra Mel-
steð gegnir fyrsta árið skólastjórn kauplaust, Páll,
19. JÚNÍ
• 30