19. júní - 19.06.1970, Blaðsíða 25
Hvernig er náminu hátmð?
HjúkrunarnámiÖ tekur 3 ár, og er samfellt nám vetur
og sumar. Námið er bóklegt og verklegt.
Hvað viltu segja urn verklega námið?
Segja má að verulegu hluti námsins sé verklegur. Fer
verklega námið fram á hinum ýmsu deildum Lands-
spítala og/eða Borgarspítala. Nokkur hluti nema vinn-
ur og á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar. Verklega nám-
ið er mjög tilbreytingaríkt, þar sem námið miðast við,
að við kynnumsl flestum hliðum hjúkrunar og hljótum
alhliða reynslu við hjúkrun ýmissa sjúklinga. Lengst
störfum við á handlæknis- og lyflæknisdeildum, 25 vik-
ur á hverri deild, þó ekki samfelldan tíma. Á kvensjúk-
dóma- og fæðingadeild, skurð- og/eða slysastofu svo
og á Kleppsspítala störfum við í tíu vikur á hverri deild.
Á barnadeild störfum við í 13 vikur, jafnframt störfum
við nokkurn tíma á húð- og kynsjúkdómadeild eða
laugasjúkdómadeild. Einnig fáum við nokkur kynni af
heilsuverndar- og heimahjúkrun.
Hljótið j)ið verklega kennslu, á meðan j>ið starjið á
hinum ýmsu deildum?
Nokkuð hefur þótt brenna við, að nám okkar á sjúkra-
deildum væri fremur vinna en nám, þar sem mikill hörg-
ull er á hjúkrunarkennurum. Nám okkar hefur að miklu
leyti hvílt á hjúkrunarkonum hverrar deildar, svo og
dug hverrar okkar við að afla sér fræðslu. Á síðast-
liðnu ári var tekin upp sú nýbreytni, að hjúkrunarkenn-
ari vinnur með nema á sjúkradeild í nokkur skipti og
leiðbeinir honum við ýmis verkefni. Ég naut slíkrar
kennslu á deild, og fannst mér hún gefa góða raun, og
er von til þess, að unnt verði að auka mjög kennslu á
sjúkradeildum í framtíðinni. Hefur meðal nema yfirleitt
verið gerður mjög góður rómur að jiessari viðleitni. Nú
hafa og verið tekin upp munnleg og verkleg hjúkrunar-
próf á sjúkradeildum, og er það öllu raunhæfara og
skemmtilegra að hjúkra sjúklingi á sjúkrastofu í hjúkr-
unarprófi en bekkjarsystur eða dúkku í hlutverki sjúkl-
ings í verklegri kennslustofu í skólanum.
Hvernig er bóklega námið skipulagt?
Bóklega námið fer aðallega fram á námskeiðum, sem
eru 4 alls, og í heild taka þau allt að tíu mánuði. Ég
verð að segja, að mér finnst okkur vera miðlað furðu
mikilli fræðslu tiltölulega á ekki lengri tíma. Bóklega
námið er mjög fjölþætt og greinarnar margar, en um
sumar er varla hægt að segja, að við fáum meira en inn-
sýn í. Á aðrar er lögð meiri áherzla, og skal þá fyrsl
nefna hjúkrunarfræði, sem skiptir mestu máli. Aðrar að-
algreinar eru líffæra- og lífeðlisfræði, lyflæknisfræði
og lyfjafræði, handlæknisfræði, sálarfræði, geðsjúk-
dómafræði, barnasjúkdómafræði, kvensjúkdómafræði
Margrét Gústajs-
rlóttir, hjúkrunarnemi.
Hjúkrunarnám
og fæðingarhjálp, hjúkrunarsiðfræði, hjúkrunarsaga og
næringarefnafræði.
Bókleg kennsla samhliða verklega náminu hefur auk-
izt mjög á síðustu þrem árum í formi svokallaðrar deild-
arkennslu. Við sækjum kennslustundir eða fyrirlestra 4
tíma á viku, 4-5 vikur samfleytt. í deildarkennslu er
stefnt að virkri þáttlöku nema í kennslunni með því, að
tveir nemar vinna saman að því að setja upp kennslu-
stund og fjalla þá um hjúkrun ákveðins sjúklings. I
lok hvers deildarkennslutimabils er tekið próf eða skrif-
uð ritgerð með hliðsjón af einhverju því efni, sem fjall-
að hefur verið um í kennslunni. Hver liópur eða „holl“
fær slíka kennslu með vissu millibili á verklega náms-
tímanum, og hefur deildarkennslan orðið til að skapa
meira jafnvægi milli bóklegs og verklegs náms.
Hver eru inntökuskilyrði í Hjúkrunarskóla íslands?
Núna er það gagnfræðapróf, en með haustinu 1972
munu eingöngu fá inngöngu í skólann umsækjendur úr
framhaldsdeild gagnfræðaskóla eða umsækjendur með
hliðstæða eða frekari menntun. Námið verður þá mjög
aukið og endurbætt með tilliti til betri undirbúnings
nýrra nemenda skólans.
Hvernig jinnst j)ér félagslíf meðal nemenda vera?
Satt að segja er félagslíf afskaplega dauft í skólanum.
Ég býst við, að sú þróun hafi orðið, að jafnframt þvi,
sem færri nemendur höfðu búsetu í heimavist, hafi
smám saman dregið úr félagslífinu.
Fratnhald á bls. 25
19. JÚNÍ
23