Sólskin - 01.07.1944, Blaðsíða 54
„Góðan daginn, kóngur“, sagði Sveinn.
„Góðan daginn, Sveinn“, sagði kóngur.
„Hvers vegna ert þú hingað kominn?“
„Ég kem nú“, sagði Sveinn, „til þess að
sækja um æðsta þjónsembætti konungs, því að
öllum er frjálst að sækja um stöðuna“.
„Ert þú nú fær um að gegna svo ábyrgðar-
mikilli stöðu?“ spurði kóngur og strauk skegg-
ið, langt og mikið.
„Það skal ég segja þér, þegar ég hef reynt
það“, svaraði Sveinn.
Kóngur leit á kóngsdótturina og kóngsdótt-
irin á kónginn, og svo skyrpti kóngsdóttirin
kirsuberjasteinunum út á gólfábreiðuna.
„Þetta ættirðu ekki að gera“, sagði Sveinn.
„Það gætu komið blettir á ábreiðuna“.
„Það kemur þér ekkert við“, sagði kóngs-
dóttirin og hélt áfram að borða.
„Ég sé, að þú ert bogmaður“, sagði kóngur.
„Hittir þú alltaf í mark?“
„Það veit ég ekki“, sagði Sveinn. „En ann-
ars býst ég við, að ég gæti skotið kirsuberja-
stein af lófa kóngsdótturinnar“.
Og nú varð kóngsdóttirin að rétta fram lóf-
ann og leggja á hann kirsuberjastein.
52