Sólskin - 01.07.1953, Blaðsíða 32
fyrir til að ganga fremsí við hliðina ó Jakob.
„Þó það11, sagði Asninn, „en ég vil ekki,
að mér sé kennt um neitt eftir ó“.
Svo lögðu þau öll af stað til að finna Norður-
pólinn. Þau spjölluðu saman, og Bangsímon
raulaði lagstúf.
„Varlega nú“, sagði Jakob og snéri sér
við. „Nú erum við komin á hœttusvœði11.
„Varlega nú“, sagði Bangsímon við Grisl-
inginn.
„Varlega nú“, sagði Grislingurinn við
Kengúru.
„Varlega nú“, sagði Kengúra við Ugluna
og Kengúrubarnið sagði nokkrum sinnum légt
niðri í vasanum: „Varlega nú“.
„Varlega nú“, sagði Uglan við Asnann.
„Varlega11, kallaði Asninn yfir alla œttingja
og vini Kaninku, og þeir flýttu sér að segja
„varlega11 hver við annan niður alla hala-
rófuna, þangað til komið var að þeim síðasta.
Og sé síðasti og minnsti af œttingjum Kaninku
varð svo hrœddur, því að honum fannst allir,
sem voru í leiðangrinum, segja: „Varlega11
bara við sig, að hann stakk sér é höfuðið
niður í nœstu sprungu, sem varð ó vegi þeirra,
30