Fréttablaðið - 08.12.2010, Page 21
8. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Snævarr Guðmundsson ferðast um með Stjörnuverið og býður upp á fræðslu um himingeiminn:
„Við getum til dæmis skoðað hvernig himinninn leit út fyrir hundrað þúsund árum,“ segir Snævarr Guðmundsson um
möguleikana sem Stjörnuverið býður upp á. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
S
tjörnuverið er sýndar-
heimur þar sem áhorf-
endur sitja inni í kúlu-
laga hvelfingu og sérstakt
sýningartæki varpar mynd af
stjörnuhimninum á veggi hennar.
„Þetta snýst um að fræða þá
sem áhuga hafa um stjörnuhimin-
inn og alheiminn,“ segir Snævarr
Guðmundsson, sem ferðast um
með stjörnuverið sitt og býður
skólum og almenningi upp á
ferð um himingeiminn. „Ég legg
áherslu á þau atriði sem nýtast
fólki við að skoða stjörnurnar að
eigin frumkvæði. Það eru ákveðn-
ir þröskuldar sem fólk rekur sig
á þegar það fer að skoða stjörnu-
himininn og nauðsynlegt að vita
eftir hverju á að leita.“
Í stjörnuverinu fræðast áhorf-
endur um stjörnur, reikistjörnur,
tunglið og önnur fyrirbæri
alheimsins. Í einu vetfangi má
fljúga hjá tunglinu, elta geim-
könnunarför á milli reikistjarna,
sjá skýjabelti Júpíters eða hringa
Satúrnusar.
Vegna þess að um líkan er að
ræða eru möguleikarnir nán-
ast ótæmandi. „Við getum til
dæmis skoðað hvernig himinn-
inn leit út fyrir hundrað þúsund
árum og hvernig hann mun líta
út eftir hundrað þúsund ár,“ segir
Snævarr. „Við getum séð öll fyrir-
bæri sem hægt er að sjá í himin-
geiminum, bæði í okkar vetrar-
braut og utan hennar, og við
getum virt fyrir okkur himininn
frá öllum stöðum á jörðinni.“
Stjörnuverið er flytjanlegt
og hannað til þess að setja upp í
leikfimisölum, mötuneytum eða
kennslustofum. Um tjaldhvelf-
ingu er að ræða sem haldið er
uppi með öflugum loftblæstri. Í
stjörnuverinu geta 26 manns setið
ásamt fyrirlesara, en mun fleiri
börn. Inni í hvelfingunni situr
fólk á púðum á gólfinu en venju-
lega er mælt með því að leggjast á
gólfið enda fer mun betur um fólk
þannig. fridrikab@frettabladid.is
Með himinhvolfið í farteskinu
Hjartað í Vaðlaheiði slær á ný en það sló fyrst árið 2008.
Það tengist verkefninu Brostu með hjartanu og hefur síðan
slegið í tengslum við verslunarmannahelgar, á Akureyrarvöku
og í jólamánuðinum. Fyrirtækið Rafeyri á heiðurinn að hjart-
slættinum og mun hjartað, sem er á stærð við fótboltavöll,
slá fram á þrettándann.
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Sparneytin
12 kg
Þvottavél
og þurrkari
Bæjarlind 6, Eddufelli 2,
S. 554 7030 S. 557 1730
Bjóðum upp á fatnað
í str. 36 - 56.
Heimasíða: www.rita.is
Komdu til okkar
og við hjálpum
þér að finna fötin
fyrir jólin
Glæsilegur sparifatnaður
Verð16.900 kr. Verð 8.900 kr.