Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1889, Síða 2

Sameiningin - 01.11.1889, Síða 2
—130 sjerstaklega gjört að sínu málefni. þótt margt sje í <51agi á ættjörð vorri, er sjálfsagt ekkert af málefnum þjöSar vorrar jafn-illa komið og hennar kristindóms mál. þess vegna var það tekið fram í grein minni, að kirkjan á yfirstandandi tíð mundi vera í meiri viöurlæging á íslandi, en í nokkru öðru prótestantisku landi, og þessi niðurlæg- ing væri einmitt prestastjettinni sjálfri að kenna. Með því, hvernig all-flestir prestar Islands standa í stöðu sinni og rækja sálusorgara emhætti það, sem yfírhiröir kirkj- unnar hefur þeim á hendur falið, hljóta þeir að sannfæra hinn hugsanai og skiljandi hluta þjóðar sinnar um þann sorglega sannleika, að prestastjett íslands stendur lægra, en prestastjett nokkurs annars lands í hinum prótestantiska heimi. þessir 200 guðfræðingar ættjarðar vorrar hengja höfuðin og þegja, þegar kristindómurinn er hæddur pg hrakinu. þeir horfa á það, að landiö er að afkristnast og þjóðin að fá svo mikla fyrirlitning fyrir þeirri kirkju, sem hún áður hefur elskaÖ svo heitt, að hún nú er að snúa við henni bakinu.—þetta, sem hjer hefur verið í fáum orðum tekið fram, var þyngdar-punkturinn í grein minni. þar var auövitað ekki unnt að gjöra grein fj’rir, að allar þessar staðhæfingar hefðu rök við að styðjast; enda var það ekki tilgangur minn í það skipti. En í fyrirlestri þeim, er jeg hjelt á hinu síðasía kirkjuþingi voru hjer vestra um vorn kirlcjulega arf, og sem að líkindum vei-ð- ur þessu svari mínu samferða heim til íslands, hef jeg leitazt við að sýna fram á, að þessar staöhæfingar mínar væru ekki gripnar úr lausu lopti. Jeg hef þar með þeirri stilling, sem jeg hef yfir að ráða, reynt að rekja upp or- sakirnar, sem til þess liggja, að kirkjan er komin í þessa ógurlegu fyrirlitning meðal fólks vors. Til þess fyrirlest- lesturs leyfi jeg mjer að skýrskota hjer. Ummæli mín í grein þeirri, sem hjer er um áð ræða, vil jeg biðja menn að skoða sem formála fyrir þeim fyrirlestri og inngangsorÖ til þess, sem jeg hef að segja viövíkjandi kirkjumálum þjóðar vorrar. Að grein mín hafi verið bæði þungyrt og stóryrt, skal jeg fúslega játa. Jeg held jeg hafi haft nokkurn veginn

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.