Sameiningin - 01.11.1889, Page 15
—143—
Hann ber enga ábyrgS á henni. því miöur drágst ferS
mín frá Islandi fram í októbermánuS. þann tíma var jeg
í Reykjavík, og vildu þá landar mínir þar fá mig til aS
hætta viS aS fara hingaS vestur. En mjer fannst, aS jeg
hefSi leyst skyldu mína af hendi viS ísland og lagt nóg
í sölurnar til aS geta þaS. Jeg kvaddi því ísland í sein-
asta sinni og kom hingaS vestur, til aS binda enda á lof-
orð mitt, sem því miSur hefur dregizt of lengi aS full-
nægja. Ná binda mig ekki framar neinar skyldur viS ís-
land, og þangaS mun jeg aldrei leita.
-------í-oOtX--------
VORT KIRKULEGA PRÓGRAM.
Eptir FriSrik J. Bergmann.
það liefur veriS skoraS á oss hjer fyrir vestan að
leggja fram hiS kirkjulega prógram vort og aS gjöra grein
fyrir þeim kristindómi, sem prjedikaður er hjer í hinni
frjálsu kirkju Islendinga fyrir vestan hafiS. Sú áskorun
er í alla staSi eðlileg. það er nauðsynlegt fyrir oss hjer,
aS gjöra oss ljósa grein fyrir, hvaS þaS er, sem sjerstak-
lega vakir fyrir oss í kirkjulegu tilliti. það er ekki nóg
aS tala að eins um þaS, sem aS er. það er ekki nóg aS
sýna fram á þá niSurlæging, sem kirkja þjóSar vorrar er
komin í nú á ytírstandandi tíð; auðvitaS er það ætíS
fyrsta skilyrSiS, aS kanna sáriS og gjöra sjer grein fyrir
orsökunnm, sem til þess liggja. En þegar þaS hefur verið
samvizkusamlega gjört, liggur það næst, að leitast við aS
hugsa upp meðöl, til að fjarlægja sjúkdómsorsakirnar, og
lyf til aS leggja við sárið. þaS hefur verið sýnt fram ú
það, aS kirkja þjóSar vorrar væri dauð-sjúk; líkami henn-
ar væri allur flakandi 1 sárurn og í þessi sár væri kom-
inn dauSi og drep. Raddirnar um þetta hafa kornið hjeð-
an að vestau. Heima á fósturjörS vorri lætur enginn til
sín heyra um dauðamein kirkju vorrar. Hvorki háir nje
lágir láta sjer þau neinu skipta. þaS er ekki sýnilegt ann-
aS, en að hin íslenzka kirkja verði þannig látin veslast
upp í sinnuleysi, jijóSin snúi smátt og smátt gjörsamlega
við henni bakinu af fyrirlitning fyrir þeirri stofnun, sem