Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.11.1889, Side 17

Sameiningin - 01.11.1889, Side 17
■145— kirkja á Islandi í fcrúarjátningarritmn sínum“. Eins og kunnugfc er, hefur kirkjan á Islandi ekki önnur játningar- rit, en hina postullegu trúarjátning, sem útlistuð er í fræð- um Lúfcers, og sem allir hafa numiö í æsku sinni, og hina frægu Ágsborgarjátning, sem öll siðbót Lúters hvílir á. það eru þessar tvær trúarjátningar, sem öll hin lúterska kirkja viðurkennir, hvort heldur á þýzkalandi, Ameríku, Norðurlöndum cða íslandi. Ágsborgarjátningin innilieldur öll hin mörgu og iniklu sannindi, sem brutust um í hjört- um hinna mestu og beztu manna, er uppi voru á siðbótar- tímabilinu, og að síðustu ruddu sjer til rúins. Cndir henn- ar merkjum hefur hin lúterska kirkja hvervetna um heim- inn síðan barizt og unnið sínar frægu sigurvinningar. það er svo langfc frá því, að hún hafi verið fjöfcur um fót lút- erslcra manna, að hún hefur miklu heldur verið fyrir þá Magna charta hins kristilega frelsis. það var engan veginn ófrelsið í heimi hugsananna, sem hinir djörfu forvígismenn siðbótarinnar börðust fyrir. þvert á móti, það var hugs- unarfrelsið, rannsóknarfrelsið, eins í trúarefnum og öðrum málum, sem barizt var þá svo drengilega fyrir, að aldrei hefur verið meiri hreysti sýnd í andans heimi. það er þetta rannsóknarfrelsi, sem síðan hefur verið einkenni lút- ersku kirkjmnnar og sem orðið hefur til þess, að hún hef- ur staðið og stendur enn lang-fremst allra kirkjudeilda í vísindalegu tilliti. Trúarjátning kirkju vorrar verður að eins fjötur um fætur þeirra, sem týnt hafa aðalatriðinu úr hjarta sjer: trúnni á frelsara heimsins. því það er trúin á hann, sem er hjartað í kristindóminum, og þegar sú trú er dauð og stirðnuð sem liðið lík, þá er skilningurinn á hinum öðrum atriðum kristindómsins horfinn, og andi mannsins finn- ur ekki annað en hneyksli og mótsagnir. Fyrir ];á, sem hafa trúna á frelsarann í hjarta sínu, eru trúarjátningarnar lifandi vitnisburður um sigur sannleikans; þær benda þeim á þau sannindi, sem leitandi mannsandinn hefur þegar til- einkað sjer í trúarefnum; þær eru eins og nokkurs konar vegaspjöld, er vara mannsandann við, að hverfa aptur inn á þá villu stigi, þar sem hann áður hefur íarið villur vega.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.