Sameiningin - 01.11.1889, Qupperneq 31
—159—
gjöfum foreldra sinna! Ó aS þeir yrÍSu sendir, til a'ð' flytja oss YelJ>óknunar-yfir-
lýsing drottins, yfir allt vort kirkjulega starf, yfir stríðið og baráttuna, sem vjer
stöndum uppi í fyrir trú vora á hann, sem fæddist hina fyrstu jólanótt! l>ess
megum vjer líka öruggir vænta, meðan vjer stríðum og berjumst i hans nafni
og fyrir hans málefni. —Jólin eru einkum hátíð hinna ungu, barnanna. Hinir
fullorðnu eiga þá aptur að læra að vera börn með því að taka J>átt í ’gleði
barnanna. Hver maður, sem ekki hefur drekkt sjer í synd og spilling,
geyrnir barn í brjósti sjer. Og barnið er hans hreinustu tilfinningar, hans
helgustu áform, hans saldausasta )>rá: allt það innst inni í sál hans, sem
breiðir faðm sinn á móti kærleik drottins. En barnið J>arf að endurfæðast og
fá svip og liking barnsins, sem lagt var í jötuna í Betlehem. Ó að börnin
í brjósti fólks vors yrðu öll að Jesú-börnum í )>essum skilningi á hinni í
hönd farandi jólahátíð!
Herra cand. theol. Hafsteinn IJetursson er nú til vor kominn og farinn að taka
þátt í hinu kirkjulcga starfi voru. Frá hans hendi standa nú tvær greinar r
,,Sam. “ í þetta skipti, og vjer getum glatt lesendur vora með því, að gefa
þeim von um margar fleiri, ef guð lofar.—það er von á síra Jóni Bjarna-
syni heim aptur nálægt 20. jan. Hafsteinn Pjetursson dvelur hjer i Winni-
peg þangað til, og býst við að taka vígslu um leið og síra Jón kemur.
T veir nýjir sunnudagsskólar hafa myndazt hjer í Winnipeg, og hefur sunnu-
dagsskóli safnaðarins gengizt fyrir því og borið kostnaðinn, sem þvi hefur ver-
ið samfara. Annar er meðal íslendinga norð-austur í bænnm, á Point Doug-
las; á hann ganga milli 20 og 30 unglingar; þar eru tveir kennarar. Hinn
sunnudagsskólinn er rjett nýmyndaður sunnarlega í bænum (Notre Dame Slr. E.)
Sá skóli hefur byrjað með 1S nemendum cg tveim kennurum.
íslendingar í West Selkirk lmfa komið sjer upp dá-snoturri kirkju, hafa
þeir sýnt með J>vi mikinn dugnað, framkvæmdarsemi og áhuga í kirkjumálum
sínum, þar sem þeir eru fámennir mjög. Fyrir nokkru hefur sunnudagsskóli
verið byrjaður þar fyrir forgöngu hr. M. Pálssonar. A hann ganga hjer um
bil tnttugu nemendur; láta menn sjer mjög mikið um það fyrirtæki hugað,
enda er það eðlilegt, þar sem velferð barnanna er annars vegar. — Betur að
hinn sami áhugi væri sýndur hvervetna þar, sem Islendingar hafa tekið sjer
bólfestu!
X«esendur ,,Sam.“ eru beðnir að fyrirgefa dráttinn, sem oröið hefur á út-
komu blaðsins. J>ótt sá, sem nú hefur ritstjórn þess á hendi, hafi nokkuð
mikið aö gjöra, hefur þó ekki drátturinn stafað af honum, heldur því, að
prenlsmiðjan, sem blaðið er prentað í, hefur haft svo afarmikið verk af
hendi að leysa fyrir tiltekinn tima, að ,,Sam.“ hefur orðið að bíða. Af því
blaðíð er oröið svo mjög á eptir timanum, eru tvö nr. látin koma út í einu
hepti. F>esember-nr. kemur út um nýárið og jan..nr. á vanalegum tíma.