Freyja - 01.12.1902, Side 16

Freyja - 01.12.1902, Side 16
Ky Þanníg svifti hryggðin mig- hugans yl og Ijöin&', sem haustið eyðir feg-urð í ríki jurta’ og blóma, Þá var það fyrsta *inn, að ég sá þig, elskan blíða, mér sýndust angurs skuggar um kinnar þínar líða. Og augu okkar mættust. Ég ástarvarmans kenndi — hið innra í sálu minni; — sem hjarta þitt mér sendi Og varir þínar bærðust, þú vildir eitthvað segja, en veröldin stóð nærri,. þú máttir til að þegja. Þín augu sögðu meira, á ástarmáli þýðu, en orðin mega lýsa, frá þinni hjartans blíðu. I hjarfca mínu fann ég, að lijá þér bjó sá kraftur, sem harm minn gæti bugað og fært mér vorið aftur. Og þegar, Ijúfa vina,. eg Mfc þig nokkru síðar, þá léku ástarbrosin um varir þínar fríðar. Og augun þín mér sögðu, að al-lt þrtt hjarta’ eg ætti.. þá eyddust mínar raunir og söknuðurinn hætti. Þá fann ég ástaraflið í taugum raírmm titra, eg trúarblóm mín spruttu þó haustið væri hið ytra, og ljóðasvanir mínir nú liðu á vængjum breiðum, með lífsins-vonartóna frá Syrgisdala heiðum. J. MAGNUS BJARNASON. Aths. : Kvæði þetta er tekið úr skáldsögunni ,,Vor og haust,“ sem J. M. B, er nú að semja.

x

Freyja

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.