Freyja - 01.12.1902, Page 35

Freyja - 01.12.1902, Page 35
NEMESIS MDDURBOMSINS. Eftxr harriet priscott stafford. I. Sjúkrahús fangelsisins var líkara livítþvegnum göngum, en nokkru öðru. Birtan streymdi óhindruð inn um háu járngrindurnar. Þjón- ustukonan var hvorki mjúkfætt nö hjartagóð. Konan sem lá i einu fletinu þar inni, vissi ekki fremur um þessi atriði en þó hún sjálf hefði verið langt í burtu þaðan, mitt í skýjunum. Það voru líka dökk ský, sem umkringdu liana á sál og líkama, þar sem hún lá með barn sitt, einungis þriggja daga gamalt. Ilafði hún sjálf einhvern tíma verið falleg — en þess sáust nú engin merki —. Var ekki ólíklegt að þessi litla, svarta ímynd mannlegs eðlis, hefði vakið viðbjóð hjá öllum öðrurn eu móðurinni. Ilún hafði verið dæmd til þrælavinnu um langan tfma fyrir fram- ínn giæp. Þó hún væri enn þá ung að aldri, var hún gömul í glæpum. Enginn glæpur var svo viðbjóðslegur, að lögreglan tryði henni ekki til að fremja liann. Hún hafði lifað líkt og dýrin — þessi slægu, viðsjár- verðu dýr. — Endurminningarnar — hefði henni auðnast að vekja þær, — um liðna æfl, hefðu vakið viðbjóð f hjarta hvers þess er heyrt hefði. — Og hert — jafnvel hjörtu englanna. En þrátt fyrir allt þetta, hrundu tvö stór tár á kinnar hennar, þeg- ar hún fann litlu manneskjuna livíla á brjóstum sér. Sólargeisli, sem gægðist inn um járngrindagluggann, snerti kinnar hennar og málaði þar endurskin sakleysisins. Þjónustukonan sá sólargeislann og dró hlerann niður. En enginn bjóst við endurskini sakleysisins í tárum þessarar konu. Hún tck ekki mikið út Hkamlega, þótt hún væri þrotin að kröftum. Hún vissi vel að al!t hafði gengið öfugt, og líf hennar væri í hættu. En það fékk ekkert á hana. Ilún hafði verið í hel .... of lcngi til að ótt- ast það nú —. Svo hafði hún sjálf sagt. Og liún skoðaði dauðann —- ekki sem fæðingu til annars lffs, heldur hvfld og gleymsku. Gegnum alla hennar margbreytilegu lífsrevnzlu, var þetta fyrsta barn hennar, og lífskjör hennar frá því sjónarmiði, vöktu lienni nýjar áður óþekktar hörmungar. þessi litla sál, sem nærðist af likama hcnnar, vakti lijá

x

Freyja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.