Lífið - 01.09.1936, Blaðsíða 10
168
LÍFIÐ
án þess að við honum þurfi að hrófla, en þá er líka
nauðsynlegt að skifta honum.
Hirðing rabarbarans er aðallega, að halda ill-
gresinu burtu og að þekja hnausana með einhverj-
um áburði (mykju, hrossataði), eða heyrudda og
slíku rusli. Á vorin er svo ,,þekjan“ tekin burtu
hæfilega snemma, og stungin niður á milli hnaus-
anna um leið og stungið er upp.
Svefn og andvaka.
Nú hljóðna vindar, húmið svalt,
það hylur fjall og grund,
og blómin sofa blítt og vært,
uns brosir morgunstund.
Hinn lúni hvílir huga og hönd
um hljóða næturstund;
en svo er hjarta þjakað, þreytt,
er þráir væran blund.
Þeim nótt er góð, er nýtur svefns,
er nærir styrk og þrótt;
en andvakan er örðug þeim,
sem e i n n er dag og nótt!
J. B.