Lífið - 01.09.1936, Blaðsíða 11
LIFIÐ
Sálorlíf Kaftarlíf.
Eftir Einar S. Frímann, rithöfimd.
Það var ákveðið að mæla fyrir vegarstæði í
kauptúni einu. Það átti að gerast að haustlagi, svo
hægt yrði að hefja verkið tafarlaust um vorið, er
snjóa leysti. En snjóarnir féllu þá fyr en varði, svo
miklir, að því varð ekki við komið um haustið.
Á útmánuðum næsta vetur var snjólaust og ein-
munatíð, þá kvaddi verkstjórinn mig til fylgdar
við sig í áðurgreint kauptún, kvaðst hann vilja
ljúka mælingunni áður en hann léti hefja vinnu
um vorið, því ærin voru þá verkefni.
Eg var að hugsa um það á leiðinni þangað, hvort
þar væri ekki einhver sem eg þekti. En eg mundi
þá í svipinn ekki eftir neinum.
Snemma næsta morgun, eftir að við komum
þangað, hófum við mælinguna. Veðrið var yndælt.
Við vorum í besta skapi og sóttum verkið af kappi.
Meðal þeirra húsa, sem vegurinn átti að liggja
nærri, var barnaskólinn. Lækur einn rann framhjá
honum og þurftum við að mæla þar fyrir brúar-
stæði. Dvaldist okkur þar því nokkuð. Það var ein-
mitt í þann mund er kensla skyldi hefjast. Börnin