Lífið - 01.09.1936, Blaðsíða 80
238
LÍFIÐ
megin, og svo úr lionum borðstofumegin á matborðið, en
Jjaðan til baka um opið í uppþvottinn.
Það er þægilegt að liafa þvottaHusið við hliðina á eld-
liúsinu, og gera það svo úr garði, að þar megi fram-
kvæma allskonar þvott og ræstingu. Á allflestum lieim-
ilum er það sama manneskjan, sem annast störfin bæði í
eldhúsi og þvottahúsi, og reka þau sig því ekki á. Þarna
er þvotturinn þveginn og keflaður, þvegin sokkaplögg,
hreinsaður fiskur og lagður í bleyti — og síðast en ekki
síst er þvottaliúsið notað fyrir baðhús. Af því menn baða
sig vanalega eftir vinnutíma, þarf ekkert að reka sig á
daglegu störfin. Þarna er þvottapotturinn til að hita í
baðvatnið og þægilegt að ná til vatns- og skólpleiðslu. 1
baðkerinu er fyrirtaks gott að skola þvott, og' það tekur
lítið rúm, ef því er komið fyrir í bekknum. Það kosgtar
ekki nema nokkrar krónur að útbúa steypibað yfir gólf-
svelgnum, hann tekur við skolvatninu, sem enginn spar-
ar, sá er kann að baða sig. Að nota bað, a. m. k. viku-
lega, lærist best með því að geta gripið til baðtækjanna
umstangslítið.
Plestir strauja þvottinn í eldhúsínu, en það ætti ekki
að gera við eldhvisbekkinn, því hann er of hár og óþægi-
legur til þeirra hluta, heldur við sérstakt strauborð, sem
má láta falla inn í vegginn, þegar það er ekki notað.
Járnin eru hituð á eldavélinni. — Eldhúsgólfið þarf að
vera létt að ræsta, en þó má það ekki vera of hart við-
konm. Margar konur kvarta um fótaverk á steingólfun-
um.. Plísar eru ótækar. Heppilegast mun linoleum vera
með flókapappa undir, þar til gúmmídúkarnir verða
ódýrari. En engin ætti að sjá í að gera eldhúsgólfin
þæg-ileg. Yæri nær að bera minna í stofugólfin, sem oft
eru Kigð dýrum ábreiðum.
Það þarf að athuga ]vað við smíði eldhúsanna að forð-
ast alt útflúr, strik og lista, svo að ræsting verði sem auð-
yeldust, og hafa ekki oppar hillur, sem ryk og rusl safn-
ast á.
Eldlmsið verður að vera ljósmálað, en margir hafa
skápa dökka utan. Með raftækjum og vaxandi .hréin-
lætiskröfum kemur að því. að eldhúsin verða höfð mjög