Lífið - 01.09.1936, Síða 27
LÍFIÐ
185
mæður, hafa g-etað látið börnunum í té sanna móð-
urást, enda þótt börnin hafi skift tugum eða jafn-
vel hundruðum. Börn, sem alast upp á hælum, bera
þess vitni, að þetta er satt.
Máttur og megin.
A vorniorgni lífsins er veröldin björt,
það veit enginn þá, hvað liún stundum er svört,
er syrtir af sorgum og þrautum.
Bn óvolkuð barnslundin brosir og hlær
við birtu og yl og því fagra, sem grær
á bernskunnar magnþrungnu brautum.
Frá bernsku til manndóms er mikilvæg leið,
og mjög veltur á því, að hún verði greið
að takmarki hreinu og háu.
Þar mörg eru vandrötuð veganna mót,
ef valin er stefna um eggjar og grjót,
má búast við erfiði einu.
Að trúa á mátt sinn og- megin er rétt,
hver maður er öflugri í sérhverri stétt,
sem óttast ei aldanna kreddur.
Bf réttlætis-hugsjón í liuga manns býr,
er hreint alveg sama — því brevtnin er skýr —
hvort biblíur eru eða eddur!
J. B.