Lífið - 01.09.1936, Qupperneq 71
LÍFIÐ
229
ið fær nokkuð í tolla og verslunarmenn fá nokkuð;
þó rennur altaf út úr landinu á aðra miljón árlega
fyrir utan fé það, sem varið er fyrir pípur, pontur,
punga, eldspýtur, reykingaborð og sígarettuveski.
Þetta getur numið nokkru fé. Þannig veit eg, að
sígarettuveski hafa verið flutt til landsins og seld
á 700 krónur hvert einstakt. Og er það lítið dæmi
um ráðdeild vora.
Það mætti, ef rúm leyfði, gera ýmsa samanburði.
T. d. aura Islendingar í félagi út fyrir tóbak á ári
upphæð svipaðri og fékst fyrir allar landbúnaðar-
vörur íslands, samanlagðar, þær sem seldar voru
til útlanda á s. 1. ári. Hugsum okkur svitadropa
allra bænda og búaliðs, — þeir megnuðu ekki að
afla þess fjár, sem eytt var í tóbak.
Það fé, sem íslendingar borguðu fyrir áfengis-
vörur, virðist eftir skýrslum fyrir ári síðan nema
aðeins hálfri upphæð tóbaksverðsins. Það er vegna
þess, að engar tölur voru til yfir það, sem smyglað
var inn og heimabruggað. En á s.l. ári tvöfaldaðist
vínsalan, og er nú mikið á fjórðu miljón kr. Þó er
tóbaksverðið yfir 300.000 hærra en vínverðið. Alt
það fé, sem íslendingar hafa lagt út fyrir áfengi og
tóbak á s.l. ári, nemur hátt á 7. miljón króna; vín
fyrir 3,3 miljónir tæpar og tóbaksvörur fyrir 3,6
miljónir röskar.
En til allra kirkju- og kenslumála varði íslenska
ríkið á s.l. ári tæpum 2 miljónum, þar með talið
alt, sem varið var til vísinda og bókmenta, laun
ailra presta og kennara á ölu landinu, sem ríkið
Sreiddi, og allur kostnaður við skólahald, að há-