Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.09.1952, Page 3

Sameiningin - 01.09.1952, Page 3
Sameiningin ____________________________ A quarterly, in support of Church and Christianity amongst Icelanders. Published hy The Evangelical Lutheran Synod of North America Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa. Bditor: REVEREND VALDIMAR J. EYLANDS 686 Banning St , Winnipeg, Manitoba, Canada Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 695 Sargent Ave. Winnipeg, Man., Can. Hátíð andans F’riðrik A. Friðriksson, prófasiur, Húsavík, íslandi: Prédikun fiuíi í Fyrsiu lúiersku kirkju, Winnipeg, Man., 1. júní 1952 “ . . . . en þér munuð öðlast kraft, er heilagur andi kemur yfir yður, og þér munuð verða vottar mínir . . . . til ystu endimarka jarðarinnar.“ Post. 1:8. í dag er siórháiíð, samkvæmt kirkjulegum hugsunar- hætti íslendinga og fleiri þjóða. Svo mun þó ekki vera með öllum kristnum þjóðum. Ég þóttist taka eftir því á dvalar- árum mínum forðum vestan hafs, að í amerísku þjóðlífi væri hvítasunnudeginum fremur lítill gaumur gefinn. Hann bar ekki þau ótvíræðu einkenni stórhátíðar, sem eiginleg eru jólum og páskum. Þannig kynni einnig að vera komið í íslenzku þjóðlífi, ef ekki væri fyrir þá sök, að þar hefir ungmennafermingin um. langt skeið verið mjög tengd hvítasunnunni og varpað yfir hana sínum sérstaka innilega blæ. Því einnig heima á íslandi þykist ég hafa orðið þess var, að tilefni hvítasunn- unnar sem stórhátíðar sé almenningi engan veginn svo Ijóst sem tilefni hinna tveggja hátíðanna. Hugsum oss þá að gangskör væri að því gerð, að fræða alla ófróða meðlimi kristinnar kirkju um að hvítasunnan sé hátíð heilags anda. Ekki er samt sem áður alveg víst, að við það lykjust hugir þeirra upp til skilnings og hrifn- ingar. Þó ekki vegna þess, að kirkjufeður og aðrir vitmenn

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.