Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1952, Blaðsíða 14

Sameiningin - 01.09.1952, Blaðsíða 14
60 SAMEININGIN bjuggu út og settu táknum til leiðbeiningar um framburð hebreskunnar, sem þá var fyrir nokkrum öldum dáin út sem lifandi talmál, er nefndur Massóretatexti og liggur til grundvallar öllum vísindaútgáfum af Gamla testamentinu og þýðingum. Þetta var geysilegt þrekvirki og er eitt stór- virkja sögunnar. En því miður eyðilögðu Massóretar öll þau handrit, sem þeir höfðu stuðzt við og lagt til grund- vallar samræmingarstarfi sínu. Tilgangur þeirra var vitan- lega sá að tryggja það, að aðeins væri notaður einn réttur texti, en fyrir bragðið varð lítið vitað um eldri texta. Gamla testamentið hafði verið þýtt á önnur mál mörg- um öldum áður og eru Peshitta hin sýrlenska og Septuaginta Iiin gríska þýðing hinar þekktustu. Hin síðari er gjörð um 200 f. Kr. og var einkum hún oft lögð til grundvallar, er menn vildu leiðrétta Massóretatextann. Hin síðari árin hafa rannsóknir, er gerðar hafa verið á þýðingum þessum, samt leitt í ljós, að þær væru ekki með öllu einhlýtar sem texta- vitni gegn Massóretatextanum. Handritafundurinn varpaði því ljósi á þar, sem reið á miklu um áreiðanleik. Það þóttu ekki ómerkar fréttir, er fréttist, að handritin væru um 1000 árum eldri en Massóretatextinn. Einnig vakti það athygli manna, að handritafundurinn í Palestínu varð með allóvenjulegum hætti. Venjulega finna menn leifar horfinna kynslóða við eljumikla leit og þolinmóð rann- sóknarstörf. En hér fundust af hreinni tilviljun hinar merk- ustu fornminjar, er þessi kynslóð hefir augum litið. Hirðar nokkrir voru á ferð um óbyggðir í Júda, við norðvesturenda Dauðahafsins, í leit að rollum sínum. Þetta hérað er mönnum kunnugt frá sögunni um miskunnsama Samverjann, hér eru hinar sömu slóðir, þar sem vegurinn liggur frá Jeríkó til Jerúsalem. Hirðarnir sáu þá hvar lítill munni var í grýttri hlíðinni, og er þeir gengu nær, sáu þeir, að þetta var hellismunni. Þeir hentu steini inn og heyrðu brothljóð. Vafalítið hefir hin fyrsta hugsun þeirra verið sú, að nú hefðu þeir fundið hulinn fjársjóð, en orðið íyrir vonbrigðum, er þeir hleyptu í sig kjarki og skriðu inn og uppgötvuðu, að í kerjum þeim, er stóðu út við veggina á þessum örlitla helli, voru einhverjir furðulega útlítandi strangar með einhverju pári á. Þeir héldu nú til næsta markaðsbæjar, sem var Betlehem, og hugsuðu sér að koma þessu gamla rusli í einhverja peninga. Þeir reyndu fyrst

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.