Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1961, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.10.1961, Blaðsíða 3
Sameiningin -------------------------------- A quarterly, in support of Church and Cliristianity amongst Icelanders Published by THE EVANGELICAL LUTHERAN STNOD OF NORTH AMERICA Authorized as Second Class Mail, Post Office Department, Ottawa Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 757 Home St., Winnipeg 3, Manitoba Við Nains hlið Lúk. 7:11-17 Flulí við guðsþjónusíu í Fyrstu lúiersku kirkju 17. september 1961. í kvöld er oss öllum fögnuður í huga. Vér fögnum hinum íslenzka þjóðhöfðingja og föruneyti hans. Vér gleðjumst yfir þeirri ráðstöfun móttökunefndar að þessir tignu gestir sitja hér með oss á hljóðri stund við guðsþjónustu. í þeirri ráð- stöfun felst viðurkenning þeirrar staðreyndar, sem ekki verður með rökum á móti mælt, að það er kirkjan, sem einna lengst og markvissast hefir unnið að viðhaldi ís- lenzkra menningarerfða hér vestra, bæði trúarinnar og tung- unnar. Tunga vor á að vísu við æ rammari reip að draga, er árin líða, en trúararfinn munum vér varðveita, og fá hann í hendur hinum ungu, sem erfa landið. Kirkjan fer ekki í manngreinarálit, og hún er ekki nýj- ungagjörn. Hún boðar þann sannleika, sem ekki breytist þótt ár og aldir líði. En það er gleðiboðskapurinn mikli um það, að þetta jarðlíf vort er ekki aðeins stundarfyrirbrigði, heldur að það á sér takmark utan rúms og tíma, og tilgang, að mannlegri von og guðlegri forsjón. Þetta kemur mjög skýrt fram í guðspjalli dagsins, sem í fyrstu versunum fjallar um einstæðingsekkju, sem stóð vonlaus og grátbólgin á grafarbarmi, vegna þess að einkasonur hennar var nýlátinn. Mörgum hefir, fyrr og síðar orðið starsýnt á ekkjuna og tíð- rætt um harm hennar, en hefir sézt yfir hversu vel sagan endaði, það, að óumræðilegur fögnuður fyllti hjarta hennar,

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.