Sameiningin - 01.10.1961, Blaðsíða 34
32
Sameiningin
Þátttaka leikmanna í íslenzku safnaðar- og kirkjulífi
fer vaxandi. Til dæmis greinir eitt íslenzku dagblaðanna
frá því, að meðhjálparinn í Neskirkju í Reykjavík hafi stigið
í stólinn síðasta sunnudaginn í maí og flutt þar prédikun í
reglulegri guðsþjónustu.
Það sem vekur þó mesta athygli í fréttum frá íslenzku
kirkjunni er djáknavígsla, sem fram fór í Grímsey 24. apríl
s. 1. Vígsluþegi var Einar Einarsson forseti sóknarnefndar
í Miðgarðskirkju í Grímsey. Einar hefur lengi verið ötull
leikmaður og sótti fyrirlestra í guðfræði við Háskóla íslands
á s. 1. vetri. Vígsluna framkvæmdi biskup íslands, herra
Sigurbjörn Einarsson, aðrir þátttakendur í athöfninni voru
þeir séra Sigurður Stefánsson, vígslubiskup Hólastiftis, séra
Pétur Sigurgeirsson á Akureyri og séra Ólafur Skúlason,
æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar.
Bænadagur íslenzku þjóðkirkjunnar var sunnudagur-
inn 7. maí. Var þá messað í öllum kirkjum landsins og kirkju-
sókn mikil. Bænarefni dagsins var: Réttlæti, friður og frelsi
í samskiptum manna, stétta og þjóða.
Þórarinn Þórarinsson, cand. theol. var vígður sóknar-
prestur til Vatnsendasóknar í S.-Þing. í upphafi prestastefnu
þjóðkirkjunnar í júní s. 1.
Þrír guðfræðikandidatar brautskráðust frá guðfræði-
deild Háskóla íslands 30. maí s.l., þeir Einar Ólafsson, Hreinn
Hjartarson og Sigurpáll Óskarsson.
Sérstök athöfn var haldin í sambandi við brautskrán-
inguna, þar sem þess var minnzt, að þetta er fimmtugasta
vorið, sem próf er haldið í deildinni og jafnframt fimmtug-
asta árið, sem séra Bjarni Jónsson vígslubiskup er prófdóm-
ari við deildina. Rektor Háskóla Islands, Ármann Snævarr,
ávarpaði viðstadda og gat þess að hér væri um algert eins-
dæmi að ræða í íslenzkri skólasögu, að einn og sami próf-
dómari starfaði samfleytt í hálfa öld. Hann gat þess að
Sigurpáll Óskarsson væri 218. kandidatinn, sem séra Bjarni
hefði prófað, en sá fyrsti var herra Ásmundur Guðmunds-
son, fyrrverandi biskup. Kvað hann það einnig merkilegt,