Sameiningin - 01.10.1961, Blaðsíða 31
Sameiningin
29
inum á Lundar í þrjú ár. Hann hefur einnig þjónað kirkj-
unum á Silver Bay, Camper og Vogar. Hann hefur átt sæti
í ýmsum nefndum Kirkjufélagsins og einnig nú undanfarið
verið meðritstjóri „Sameiningarinnar“.
Sunnudaginn 18. júní hélt Calvary söfnuðurinn í Seattle,
Washington upp á 50 ára vígsluafmæli Dr. Haralds Sigmar
fyrrv. forseta Kirkjufélagsins. Dr. Haraldur þjónaði söfnuð-
um Kirkjufélagsins í 46 ár. Hann á núna heimili í Kelso,
Washington.
Séra Kristinn K. Ólafsson, fyrrverandi forseti Kirkjufé-
lagsins um 20 ára skeið, lézt á heimili sínu í Manchester,
Iowa 27. júní s. 1., áttræður að aldri. Hans er getið nánar
í þessu riti.
J. B.
Kirkjufréttir af íslandi
Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar:
Þjóðkirkja Islands hefur á undanförnum árum sýnt
vaxandi áhuga á kirkjulegum æskulýðsmálum. Það má
segja, að þessi áhugi eigi sér að nokkru leyti rætur hér vest-
an hafs. Haustið 1947 var stofnað á Akureyri Æskulýðsfélag
við kirkjuna þar. Stofnandi þess var séra Pétur Sigurgeirs-
son, en eins og lesendum er kunnugt, dvaldi hann hér vestan
hafs um nokkurt skeið, bæði við nám háskóla hér á megin-
landinu og einnig við starf innan Kirkjufélagsins. Æsku-
lýðsfélag Akureyrarkirkju var hið fyrsta sinnar tegundar,
sem stofnað var í beinum tengslum við sjálft safnaðarlífið.
Fleiri slík félög voru síðan stofnuð innan safnaða á Norður-
og Vesturlandi, og hafa þessi félög haft samband sín á milli
um nokkra ára bil. Hér var því um merkt brautryðjenda-
starf að ræða.
Árið 1955 var séra Bragi Friðriksson ráðinn æskulýðs-
fulltrúi Reykjavíkur, og er það hlutverk hans að gera til-
lögur um framkvæmdir bæjarins á sviðum æskulýðsmála