Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1961, Blaðsíða 25

Sameiningin - 01.10.1961, Blaðsíða 25
Sameiningin 23 Enda þótt séra Friðrik ætti mest af starfsferli sínum að baki sér, þegar ég kom til vits og ára, þá naut ég samt þeirrar gæfu að kynnast honum nokkuð á seinustu árum ævi hans. Það sem mér virtist gera séra Friðrik að mikil- menni, var hlýðni hans, hlýðni við Guðs vilja. Þessi hlýðni kom fram annars vegar í kærleika hans til Guðs, en hins vegar í kærleika hans til náungans. Hann elskaði Guð og lifði stöðugt undir handleiðslu Guðs. Fyrir honum var Guð hin volduga hetja og hönd Guðs sterk og útrétt til hjálpar. Þessum volduga Guði gaf séra Friðrik líf sitt, og voldug hönd leiddi hann til mikilla afreka. Séra Friðrik var hetja í liði hinnar miklu hetju, hann var merkisberi Drottins. Hann var hetjan, sem hélt hátt á lofti merki Krists á erfið- ustu tímum, sem kristin kirkja á íslandi hefur átt, þegar bæði ytri og innri öfl lögðust á eitt um að vega að kristinni trú, þá stóð hann föstum fótum og hélt uppi merkinu og hvatti aðra liðsmenn til dáða. Séra Friðrik elskaði samferðamenn sína mikið. Hann lék sjálfan sig hart til að þjóna öðrum. Hann laðaði að sér unga og gamla, einkum unga, með kærleika sínum og per- sónuleika. Þeim, sem þekktu séra Friðrik vel, virðist bera saman um það, að hann hafi haft meiri áhrif á þá með per- sónuleika sínum, umgengni og samtölum heldur en með prédikun sinni. Hann var heldur ekki mælskumaður í þrengri merkingu þess orðs, hann var þvert á móti fremur málstirður. En hann hafði einstæða frásagnargáfu og virtist stöðugt sjá sýnir í huga sér og svo lýsti hann því, sem hann sá, stundum á skáldlegan máta. Hann talaði í myndum. Þessi eiginleiki séra Friðriks átti sérlega vel við börn og unglinga. Hitt var líka hvað veigamest, að boðskapurinn gagntók hann, meira en það, skóp manninn. Hann lifði Kristi og Kristur lifði í honum. Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson, lét svo um mælt í kveðjuorðum við útför séra Friðriks: „Vér gjörum enga að dýrlingum í vorri kirkju. En eigi mun samtíð séra Friðriks deila um það, að hann hafi verið jafnoki þeirra, sem helgir voru kallaðir.“ Séra Friðrik var vissulega einn af beztu sonum íslands. Hann var að verðleikum sæmdur

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.