Sameiningin - 01.10.1961, Side 24
22
Sameiningin
eyja“. Ástarsorg og trúarlegar efasemdir höfðu hrakið þenn-
an unga stúdent út á yztu nöf, hann hugðist svipta sig
lífinu. En nú greip hin volduga hönd Guðs fram í. Á leið-
inni til Færeyja hafði maður nokkur leitað til hans um hjálp
og athygli séra Friðriks var beint frá hans eigin vanda.
Hann hafði óljósan grun um að Guð vildi honum eitthvað.
Þar sem hann reikaði um götur Þórhafnar, kom honum
skyndilega í hug trúboði nokkur, sem komið hafði til
Reykjavíkur nokkrum árum áður frá Færeyjum og nú datt
honum í hug að spyrja uppi þennan mann. En svo vildi til,
að trúboði þessi var að halda samkomu og fékk nú Friðrik
húsaskjól með því að setjast inn á samkomu baptistasafnaðar
í Þórshöfn. Þvílík áhrif hafði þessi samkoma og rás atburð-
anna á séra Friðrik, að hann var þess fullviss að hönd Guðs
hvíldi á sér og upp frá því lét hann leiðast algjörlega af
þessari sterku hönd.
Á námsárum sínum í Kaupmannahöfn kynntist séra
Friðrik starfi K.F.U.M. þar í landi og hreifst af því. Hann
gerðist þar sjálfboðaliði og eignaðist þar marga góða kunn-
ingja. Hann dvaldist síðar í Danmörku í eitt ár, 1907, og í
sex ár í síðari heimsstyrjöldinni.
Þegar séra Friðrik kom heim frá námi, hófst hann þegar
handa að hjálpa þeim, sem bágt áttu og að laða börn og
unglinga til Krists. Hann mætti strax háði og spotti, en lét
það ekki á sig fá. 2. janúar 1897 stofnaði hann K.F.U.M. í
Reykjavík og í apríl sama ár K.F.U.K. Prestsvígslu tók séra
Friðrik 14. október árið 1900 og þjónaði fyrst Holdveikra-
spítalanum um nokkur ár, síðan öðru prestsembættinu við
dómkirkjuna um tíma og var settur sóknarprestur á Akra-
nesi um skeið. Annars sóttist séra Friðrik ekki eftir embætt-
um, hann bara þjónaði þar sem þörfin var mest. Hann
starfaði hér í Vesturheimi á árunum 1913 til 1916. Mestu
af starfskröftum sínum varði þó séra Friðrik í þágu K.F.U.M.
og K. og í þágu æsku íslands yfirleitt. Á þessu sviði var
hann heilan mannsaldur og á undan samtíð sinni, sem sést
bezt á því, að loks nú á allra seinustu árum eru kirkjunnar
menn á íslandi almennt að vakna til að vinna þau verk, sem
séra Friðrik hóf fyrir meira en 60 árum.