Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1945, Síða 13

Sameiningin - 01.03.1945, Síða 13
27 Og það er ekki eingöngu í líkamlegri merkingu, heldur og í andlegri merkingu satt, að “Ef kaldur stormur um karlmann fer og kinnar bítur og reynir fót, þá finnur hann hitann í sjálfum sér og sjálfs síns kraft til að standa mót.” Mikið er hlutverk óveðursins í lífi manna og þjóða. Óveðrunum er það oft að þakka, að hið nýja og betra fær komið í stað hins gamla og verra. Það var 18. apríl árið 1906 að borgin San Francisco hristist og hrundi í jarðskjálfta. Þá gaus og upp eldur og eyddi borginni. I þrjá sólarhringa stóð bálið. Lá þá borgin í rústum. En óveður það kendi borganbú- um að reisa nýja borg, betri borg, traustari og fegurri hús. Óveðrin kenna oss ávalt að byggja oss traustari hús að búa í um tíma og eilífð. Einhver dásamlegasta bókin, sem rituð hefir verið, heitir Inferno (Víti). Enginn annar en Dante, hinn ítalski, gat hafa samið þá bók. Vel hefði hann mátt hafa að for- málsorðum lýsinganna í kvalastaðnum: Þetta er það, sem augu mín hafa séð, eyru mín heyrt, hjarta mitt fundið. í útlegð var Dante í fjórðung aldar. Eitt sinn, er hann ráfaði um meginland Evrópu, segir sagan, að hann kæmi. að næturlagi að gistihúsi og dræpi á dyr. Húsbóndinn stakk höfði út um glugga og spurði: “Hvað vilt þú maður?” Dante svaraði: “Eg vil frið”. Dægrum saman stóð hann á kletti út við sjó og starði votum augum í áttina til Florenz, ættborgarinnar kæru, og hjarta útlagans blæddi af heim- þrá. Þegar liðin voru tuttugu og fimm ár fluttu þeir hann heim — á líkbörum, og jörðuðu hann og lögðu grjóthellu á leiðið. Sex hundruð árum síðar leitaði Byron skáld uppi legstað Dantes, féll á kné og grét hástöfum. Honum duldist ekki að gjöfin dýrmæta, sem Dante gaf heiminum, hafði orðið til í óveðri sársaukans mikla. Ekki ódýrri Dantes drápum eru píslarljóðin íslenzku. Fátækur, svo stundum skorti brauð á borð, holdsveikur, svo hendur og fætur rotnuðu lifandi, vonsvikinn, svo ástríkt hjarta fann ei bergmál, úthelti Hallgrímur söng í blóði. Tveim öldum síðar kom Matthías skáld þar að í anda, sem kvala-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.