Sameiningin - 01.03.1945, Blaðsíða 41
55
málsaðilum. Þessir fyrirrennarar vorir voru gunnreifir bar-
dagamenn, og stundum stórhöggir í meira lagi. En þeir gerðu
ekki samninga við samvizkur sínar — um að þegja — hvað
sem í veði var; jafnvel þótt eigin tilfinningar, vinslit og
sársauki er baráttan oft ihlaut að valda, gengi mjög nærri
þeim. Samvizka þeirra — skilningurinn á hlutverki þeirra,
bauð þeim að fara þessa leið leið fremur en að sigla á
lognsæ friðar og afskiptaleysis. Þeir höfðu öðlast skilning
á því, er íslenzku þjóðinni fram til síðari tíma — og oss
er nú lifum — gengur oft illa að skilja, að kirkja Krists,
hverju nafni sem hún nefnist, sé hún köllun sinni trú, verður
að vera stríðandi kirkja.
Ritstjórar “Sameiningarinnar” (Lauslegt yfirlit)
Séra Jón Bjarnason, D.D., 1885—1914. Millibilsritstjórar:
Séra Friðrik J. Bergman og séra Rúnólfur Marteinsson.
Séra Björn B. Jónsson, D.D., 1914—1932. Meðritstjóri séra
G. Guttormsson. Millibilsritstjóri séra N. S. Thorláksson.
Séra Friðrik Hallgrímsson annaðist unglingadeildina.
Séra K. K. Ólafson, séra G. Guttormsson, séra J. A. Sigurðs-
son, 1932—1933.
Séra K. K. Ólafson, séra G. Guttormsson, séra Rúnólfur
Marteinsson, 1933—1938.
Séra K. K. Ólafson, séra G. Guttormsson, séra Valdimar J.
Eylands, 1938—1943.
Árið 1943—1944 annaðist framkvæmdarnefnd Kirkjufélags-
ins ritstjórnina.
Séra S. Ólafsson, 1944—1945.