Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1945, Blaðsíða 32

Sameiningin - 01.03.1945, Blaðsíða 32
46 Sigurtilfinning nýlendulífsins hefir ekki verið lýst eins og skyldi. Erfiðleikarnir er fyrir urðu eru ekki hið markverðasta, heldur framsóknin er taldi sigurinn vísan. Slíkur hugur efldi framkvæmdir. Það lá í mönnum að þeir gætu það, sem þeir vildu nógu ákveðið. Þessvegna ræðst örlítið kirkjulegt brot í að gefa út kristilegt rit — ræðst í það, sem fram að þessu hafði reynst öðrum óframkvæmanlegt. Hér var vísir er spratt úr frjórri moldu. Sameiningin átti erindi, sem vott- ur um vaknandi hug. Hún var byrjun er kvaddi til eftir- dæmis. Það verður ætíð þakkarefni þeim er kristnum hugsjón- um unna að í nýlendulífinu hér á vesturslóðum voru það áhrif kirkju og kristindóms er einna ríkastan þátt áttu í því frá byrjun að tengja saman hópana á dreifingunni í heild, eins og líka í því að sameina hvern hóp fyrir sig. Það var til að félög er báru veraldleg nöfn héldu uppi lestrar- samkomum á helgum dögum. Fátt verður fremur falið kristni íslands til sóma og inntekta en það að hjá íslenzkum almenningi er sezt að í fjarlægri heimsálfu kemur fram sterk þörf og viðleitni að láta kristindóminn sitja í fyrir- rúmi. Kristilegur félagsskapur verður sterkasta samtenging- araflið og kemur til sögunnar áður en of seint er orðið. í þessu efni eru það víða íslenzkir leikmenn er koma til sög- unnar ótilkvaddir og hefjast handa. Upphaf vestur-íslenzkr- ar kristni var að miklu leyti leikmannastarf. Kirkjuþingið sem samþykkti útgáfu Sameiningarinnar var að mestu leyti leikmannaþing. Tveir prestar voru þá þjónandi í kirkju- félaginu, en annar þeirra hvarf frá skömmu síðar. Liðið var fáment en vel skipað. Sá eini er eftir varð var séra Jón Bjarnason -—enginn meðalmaður í neinu. Sameiningin átti erindi, sem tákn þess hvílíkan þátt kristileg samtök átti í nýlendulífinu. Hve mikilsvert það var að Sameiningin átti upphaf sitt og þvínær hálfan aldur fram á þennan dag í höndum slíks yfirburða manns og séra Jón Bjarnason var, er á meðvitund allra er til þektu og málstaðinn meta. Hún átti alveg sér- stakt erindi, sem ritvöllur hins fremsta og tilþrifamesta penna er þá reit meðal Vestur-íslendinga. Málgagn kirkju- félagsins var hún að vísu og að því skal vikið síðar. Þannig hefði hún átt erindi þó meðalmaður hefði haft ritstjórn á hendi. En í höndum djarfs og hreinskilins foringja, sem átti myndugleik til að fá áheyrn bæði hér og á íslandi, varð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.