Sameiningin - 01.03.1945, Side 15
29
hans, rifja menn upp endurminningar um manninn þann,
sem margir telja líkastan hafa verið sorgarmanninum frá
Nazaret. Abraham Lincoln hafði talinn verið ófríðastur
maður í ríkinu, en þegar hann síðast svaf í kistu sinni,
eftir allar andvökunætur lífsins, gengu þúsundirnar fram
hjá, horfðu gegn um tárin á fölnað andlit forsetans og
mæltu; “Sjá hversu yndisleg er ásjóna hans.”
Frægur maður franskur hefir málað þá mynd, sem
nefnd er “súlnagöng snillinganna”. Þar getur að líta mælsku-
menn, spekinga, skáld og vísindamenn, þá menn, sem skarað
hafa fram úr á öllum sviðum láfsins. Allir hafa þeir verið
í óveðrum úti. Einna fremstur á myndinni er Móse, er aug-
um fékk að líta, en ekki fæti stíga á sitt fyrirheitna land.
Við hlið hans er Hómer blindi og fálmar fyrir sér í myrkr-
inu. Þá er Sókrates og hefir eiturbikarinn 1 hendi. Þar er
Páll postuli, svo barinn og blár, að naumast þekkist. Þar
er Dante með örvæntingarsvipinn átakanlega. Þar er Milton
blindur og beygður af sorgum. En upp yfir alla gnæfir
mynd af honum, sem um er ritað að öll kné skuli beygja
sig fyrir, hann, sem særður var vegna vorra synda og
kraminn vegna vorra misgjörða. — Vel hefði listmálarinn
mátt hafa þau orð að yfirskrift myndarinnar: Þetta eru
þeir, sem úti hafa verið 1 óveðrunum.
Sorgin er eitt af sakramenntum lífsins
“Á sorgarhafsbotni sannleiksperlan skín;
þann sjóinn máttu kafa, ef skal hún verða þín.”
í óveðrinu verða menn að mönnum.
Ekki hefði Lúter orðið hetja, nema fyrir Worms; ekki
Cromwell, nema fyrir Marston Moor. Ekki getur maður
hugsað sér Wesley erkibiskup af Kantaraborg, né Wash-
ington 'hirðmann Georgs þriðja. Allir þessir menn urðu að
mönnum í óveðrunum. Mikilmennin eru dýru verði keyptir.
Verðkaup Stefáns var grjótið, Savanarolas gálginn, Sókra-
tesar eitrið, Lincolns kúlan, — og verðkaup Krists var
krossinn.
Vér, sem nú erum fulltíða menn, höfum allir verið úti í,
eða að minsta kosti heyrt dunur hins mesta óveðurs, sem
yfir veröldina hefir gengið frá alda öðli.