Sameiningin - 01.03.1945, Qupperneq 42
56
Hvatning
til safnaðanna í kirkjufélagi okkar.
Eftir séra H. Sigmar, D.D.
Alt safnaðarfólk hefir mörgum skyldum að sinna heima
fyrir, — innan vébanda safnaða sinna og sveita. Þar er
vitanlega um ýms framlög að ræða, bæði til viðhalds safn-
aðarstarfseminni og til styrktar þeim málum, sem söfnuður-
inn hefir á starfsskrá sinni, og tekur á starfsskrána við og
við. Altaf eru líka einhver framlög til líknarstarfs og annara
skyldra starfa innan sveitarinnar þar sem söfnuðurinn
starfar og safnaðarlimirnir búa.
Yfir það heila er þetta starf heima fyrir rækt sóma-
samlega, og framlögin sæmilega örlát, hjá fólki safnaðanna
í okkar félagi. Er fylsta ástæða til að fagna út af þeirri
ræktarsemi, sem að þannig kemur fram hjá fjölda mörgum.
En það má ekki gleymast, að hver safnaðarlimur, eins
og líka hver söfnuður, hefir skyldur að rækja og útgjöldum
að mæta, utan safnaðar síns og sveitarinnar þar, sem söfn-
uðurinn starfar. Hér á eg auðvitað aðallega við útgjöldin
til hinnar víðtækari kristilegu starfsemi kirkjufélagsns, og
jafnvel einnig kristilega starfsemi utan vébanda kirkju-
félagsins.
Það hefir kannske einhverntíma komið fyrir að fólk í
söfnuðum okkar, hefir heyrt prestinn eða einhvern starfs-
mann safnaðar síns, segja að næsta sunnudag eigi offur
safnaðarins við guðsþjónustu að ganga í starfssjóð kirkju-
félagsins. Fólkið hefir kannske varla vitað, við hvað var
átt, og fundist þetta vera óþarfa uppátæki. Til skýringar
vil eg geta þess að þessi starfssjóður er notaður aðallega til
trúboðsstarfs, bæði heima fyrir í landinu og erlendis. Eitt-
hvað réttum 60 cents af hverjum dollar er notað til þess.
Miklu minni upphæðir af þeim sjóði eru notaðar til menta-
málastarfsemi innan kirkjunnar, í eftirlaunasjóð og rekstrar-
kostnað. Þessi starfssjóður, sem eg svo nefni hér. er á ensku
máli nefndur “The income objective” eða “The apportion-
ment”, eins og í ljós kemur þegar lesin er hin ágæta hvatn-
ingarræða S. O. Bjerring, féhirðis kirkjufélags okkar, sem
hann flutti í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg rétt eftir