Fréttablaðið - 10.03.2011, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 10.03.2011, Blaðsíða 46
10. mars 2011 FIMMTUDAGUR30 30 menning@frettabladid.is Leikhús ★★★★ Allir synir mínir Þjóðleikhúsið Höfundur: Arthur Miller. Leik- stjóri: Stefán Baldursson. Leik- arar: Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Baldur Trausti Hreinsson, Björn Thors, Edda Arnljótsdóttir, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Hannes Óli Ágústsson, Jóhann Sigurðarson og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Frumsýning í Þjóðleikhúsinu á föstudaginn. Án Íbsen enginn Miller, alla vega eru áhrifin sterk og leikritið „Allir synir mínir“ mjög svipað nokkrum verkum norska skáldrisans. Leikritið „Allir synir mínir“ er hér flutt í leikstjórn Stefáns Bald- urssonar sem velur fremur hefð- bundna nálgun með raunsæjum leik. Leikmyndina gerir Grétar Reynisson og er í henni hið eina raunverulega brot við raunsæið þar sem húsakynnin og veröndin er í leikmyndinni vængur flug- vélar. Þetta er tákn hinnar undir- liggjandi sorgar og þess lygavefs sem fjölskyldan lifir í. Hér er mikið fjölskyldudrama þar sem örlagasögur allra persónanna fléttast inn í atburðarásina. Fal- leg fjölskylda í fullkomnu húsi. Ríkidæmi sem byggir á stríðs- gróða. Leikurinn hefst á því að von er á Ann kærustu Larrý. En Larrý fórst í stríðinu þó svo að móðirin neiti að viðurkenna það. Það er eldri bróðirinn Chris sem boðið hefur henni heim en þau hafa ruglað saman reytum. Faðir Ann situr í fangelsi fyrir glæp sem hann framdi sem starfsmað- ur Joe Keller í stríðinu, seldi gall- aða varahluti í flugvélar sem varð til þess að 21 ungur maður lét lífið. Þaðan kemur titillinn „Allir synir mínir“. Spurningin um þátt Joe í glæpn- um liggur í loftinu en hann er afhjúpaður að lokum. Bróðir Ann kemur eftir að hafa heimsótt föður sinn í fangelsið og varpar sprengju inn í samkomuna. Faðir- inn Joe ver sig með því að halda því fram að það hafi verið ástin á fjölskyldunni sem stjórnaði gjörð- um hans. Samviskan lætur á sér kræla en hann vinnur ötullega í því að leyfa rödd hennar ekki að hljóma. Varnarræða hans verður hjóm eitt í samanburði við fórnirnar, alla ungu drengina sem fórust í stríðinu. Joe Keller velur að horf- ast ekki í augu við gjörðir sínar hérna megin landamæra lífs og dauða. Jóhann Sigurðarson leikur þennan kraftmikla en kjarklitla föður. Nærvera hans og nálgun er mikilfengleg um leið og hann er alltaf á barmi hins bannaða. Guðrún Snæfríður Gísladóttir fer með hlutverk Kate, eiginkonu Joe. Meðvirkni er driffjöður allra gjörða hennar og það sýnir Guð- rún snilldarlega í samskiptum við alla þá sem fyrir koma í verkinu; hún missir aldrei sjónar á því að feluleiknum er ekki lokið. Stóra þema verksins er vitaskuld það sem við öllum vitum en lærum svo seint: illa fengið fé leiðir alltaf til ógæfu að lokum, en segja mætti líka að þema í þessari uppfærslu væri meðvirkni og lífslygi. Syninum sem eftir er heima kynnumst við gegnum Björn Thors. Einnig þessi persóna, Chris, er meðvirknifórnarlamb sem brýst út úr fastmótuðu fjöl- skylduhlutverki sínu. Frábær leikur í einu orði sagt. Kærastan Ann sem Arnbjörg Hlíf Valsdóttir leikur, birtist eins og álfamær, en sýnir fljótlega að talsverður kraft- ur er í henni og að eins og aðrir ber hún sitt eigið leyndarmál. Arn- björg hefur sterka útgeislun og nærveru. Með því að hún afhjúp- ar sitt leyndamál, það er hvern- ig Larrý dó í raun og veru, leys- ist lygavefurinn upp. Bróðir Ann, ungur lögfræðingur mjög skadd- aður úr stríðinu, sem hafði alist upp í næsta húsagarði, birtist til þess að afhjúpa þátt Joes í hinum meinta glæp föður hans. Atli Rafn Sigurðarson ljær þessum unga manni, sem er þjáður af sorg og reiði, mjög vel líf. Vigdís Hrefna Pálsdóttir birtist eins og falleg dúkka. Stúlkan Lydia velur að hlæja og flissa, sauma og skreyta hatta fremur en að takast á við erfiðleika lífsins. Baldur Trausti Hreinsson í hlutverki læknisins, sem vandi komur sínar á Keller- heimilið, virtist eins og stokkinn úr einhverju rússnesku leikriti. Gervi Eddu Arnljótsdóttur sem eiginkona læknisins var aðeins of ýkt eða vúlgert þó svo að hún hafi það skýra hlutverk í leikrit- inu að vera grímulaus fulltrúi hinna fégráðugu. Læknirinn á aðra drauma, en hún sér til þess að hann haldi sig við skaffarahlut- verkið. Edda er fyndin og nýtir vel allan líkamann í túlkun sinni. Samsetning leikarahópsins var mjög góð. Tónlistin í upphafi þar sem við sitjum í myrkri og mars- inn þekkti um Johnny sem er að koma heim leiðir okkur inn í þann hugarheim sem síðan tröllbindur áhorfendur næstu þrjá klukku- tímana. Leikurinn er upp á fimm stjörnur meðan verkið sjálft er nokkuð barn síns tíma. Sviðið er ekki notað til þess að hanga í köðl- um eða sprikla upp um veggi held- ur sem frásagnarundirstaða fyrir fágaðan sígildan sjónleik. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Fantagóð sýning á allan hátt! GRÆÐGI DREPUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR?Fimmtudagur 10. mars 2011 ➜ Tónleikar 21.00 Í kvöld stígur á svið Sódómu Reykjavíkur „tribute-band” sem flytur lög íslensku pönksveitarinnar Purrkur Pillnikk. Húsið opnar kl. 21. Aðgangs- eyrir er kr. 1.000. 21.00 Gítartríóið Guitar Islancio leikur á Kaffihúsinu á Álafossi í kvöld og hefj- ast tónleikarnir kl. 21. Miðasala fer fram við innganginn. í Perlunni 9.-13. mars Veitingahúsið Perlan · Sími: 562 0200 · Fax: 562 0207 Netfang: perlan@perlan.is · Vefur: www.perlan.is Heilsteikt öndHEIL ÖNDT 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Ég man þig - kilja Yrsa Sigurðardóttir Ljósa - kilja Kristín Steinsdóttir Sjöundi himinn - kilja James Patterson Skólaljóð Ýmsir - Halldór Pétursson Fátækt fólk - kilja Tryggvi Emilsson Sumarlandið Guðmundur Kristinsson METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 02.03.11 - 08.03.11 Svar við bréfi Helgu - kilja Guðmundur Kristinsson Góða ferð - Helen Garðars- dóttir/Elín Magnúsdóttir Máttur viljans Guðni Gunnarsson Eyjafjallajökull Ari Trausti/Ragnar TH. ➜ Námskeið 21.00 Jörmundur Ingi fyrrum alsherjargoði og núverandi herratískumó- gúll mun standa fyrir námskeiði í skóhirðu á Faktorý í kvöld klukkan 21. Snyrtilegur klæðn- aður, óhirtir leðurskór og vandað framferði er skilyrði. Aðgangur er ókeypis. Allir velkomnir. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. KÓR MH Í HÁTEIGSKIRKJU Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur við messu í Háteigskirkju á sunnudag klukkan 11. Blásarar úr hópi kórfélaga leika á hljóðfæri sín og Kári Allansson leikur á orgelið. Stjórnandi kórsins er Þorgerður Ingólfsdóttir. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Að messu lokinni verður boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimilinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.