Fréttablaðið - 12.03.2011, Síða 6

Fréttablaðið - 12.03.2011, Síða 6
12. mars 2011 LAUGARDAGUR6 HAMFARIR Í JAPAN • Átt þú erfitt með að sofna á kvöldin? • Vaknar þú um miðjar nætur eða snemma á morgnana og nærð ekki að sofna aftur? • Finnst þér oft að þú fáir ekki nægilega góðan nætursvefn? • Ert þú oft þreyttur eða syfjaður á daginn? • Hefur þú miklar áhyggjur af svefnleysi og afleiðingum þess? Fimm vikna námskeið við svefnleysi (insomnia) er að hefjast á vegum Helenu Jónsdóttur og Sóleyjar D. Davíðsdóttur sálfræðinga Kvíðameðferðar stöðvarinnar. Námskeiðið er byggt á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar þar sem veitt er fræðsla um svefn, og þátttakendur aðstoðaðir við að breyta svefnhegðun og hugarfari sem grefur undan svefni. Streitustjórnun og slökun jafnframt kennd. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 9. febrúar klukkan 16.00 og fer skráning fram fyrir 7. febrúar hjá Kvíðameðferðarstöðinni í síma 534-0110/822-0043 eða með tölvupósti á kms@kms.is. Námskeið við svefnleysi Fylgstu með stærsta og fjölmennasta Reykjavíkurskákmótinu frá upphafi. Á mótinu keppa um 30 stórmeistarar og eru þar á meðal margir af þekktustu og sterkustu skákmönnum heims. Teflt er í Ráðhúsinu og hefjast skákirnar kl. 16:30. Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is MP banki er meginbakhjarl Vetrarhátíðar í Reykjavík MP Reykjavíkur- skákmótið 2011 Í Ráðhúsi Reykjavíkur, 9.-16. mars Taktu þátt í skemmtilegri getraun á staðnum. Þú gætir unnið gjafakort frá MP banka. Smástund leið áður en fólk áttaði sig á því að risajarðskjálftinn í Japan í gær væri stærri en geng- ur og gerist. Jarðskjálftar eru þar svo tíðir að fæstir kippa sér upp við smáskjálfta. Árni Kristjánsson, doktorsnemi við Listaháskólann í Tókýó, var staddur á veitingahúsi í miðborg- inni þegar skjálftinn brast á, laust fyrir klukkan þrjú síðdegis að staðartíma. „Þetta byrjaði eins og þessi venjulegi hristingur, en svo leit fólk hvað á annað inni á veit- ingastaðnum, þegar rann upp fyrir því að þetta væri eitthvað meira. Eftir fyrstu tíu sekúndurnar var það orðið mjög augljóst að þetta var ekki venjulegur skjálfti.“ Árni hljóp út af veitingastaðn- um og út á miðja götu. „Þarna er mjög mikið af mjóum háhýsum, átta til tíu hæðir, allt í kring. Þau sveifluðust um eins og þau væru gerð úr gúmmíi og mikil mildi að glerið skyldi ekki brotna í rúðun- um. Maður sá grindurnar bogna. Þetta var alveg svakaleg sjón og fólk greinilega frekar hrætt.“ Vegna þess að lestarkerfið í Tókýó lá niðri eftir stóra skjálft- ann var ekki hlaupið að því að komast um borgina. Árni segir leigubíla strax hafa verið tekna þannig að hans beið tveggja og hálfrar klukkustundar gangur heim. „Og ég sá sem betur fer svo sem engar sérstakar skemmdir á leiðinni heim,“ segir hann. Þegar heim var komið sá hann að hlutir höfðu fallið úr hillum og færst úr stað. Síðan sá hann í fréttunum að annars staðar hefðu hús hrunið og eldar kviknað í borginni, auk við- varana vegna flóðbylgjunnar sem gekk á land. Á leiðinni heim sagðist Árni hins vegar hafa orðið vel var við eftir- skjálftana sem riðu yfir, en þeir voru margir á stærð við og stærri en stærstu skjálftar sem verða hér á landi. „Maður finnur þrýstinginn í jörðinni, en þarf að horfa í kring um sig til að sjá hvort skjálfti er í gangi eða ekki. Svo kannski heyrði ég skilti b er ja s t v ið næsta húsvegg.“ Árni segir eftir- skjálfta hafa komið með um það bil tutt- ugu mínútna millibili fyrstu klukkustund- irnar eftir stóra skjálftann, sem var 8,9 á Richter. Íslendingar sem búsettir eru í Tókýó settu sig strax í sam- band hver við annan og sagðist Árni ekki hafa heyrt annað en allir væru heilir á húfi. Ástand væri hins vegar dálítið misjafnt eftir hverfum. Þannig virtist lífið ganga sinn vanagang í hans hverfi, verslanir voru opnar og fólk í búðum. Félagi í suðurhluta borgarinnar sagði honum hins vegar að drífa sig í að kaupa inn, því þar hamstraði fólk allt ætilegt í búðum líkt og það byggi sig undir nokkur harðindi. olikr@frettabladid.is Háhýsin sveifluðust sem væru úr gúmmíi Íslendingur í miðbæ Tókýó var í um tvær og hálfa klukkustund að ganga heim til sín eftir risaskjálftann í gær. Fólki var brugðið. Skemmdir eru mismiklar eftir hverfum. Heyra mátti skilti berja hús utan þegar eftirskjálftarnir gengu yfir. © GRAPHIC NEWS Stærstu jarðskjálftar sögunnar Jarðskjálftinn út af norðausturströnd Japans mældist 8,9 stig og er því sjöundi öfl ugasti skjálfti sem mælst hefur. Valdivía Síle 22. maí, 1960 9,5 Alaska Bandaríkin 28. mars, 1964 9,2 Súmatra Indónesía 26. desember, 2004 9,1 Kamtsjatka Rússland 4. nóvember, 1942 9,0 Arica Síle (þá Perú) 13. ágúst, 1868 9,0 Cascadla Kanada/Bandaríkin 26. janúar, 1700 9,0 Sendal Japan 11. mars, 2001 8,9 Maule Síle 27. febrúar, 2010 8,8 Esmeraldas Ekvador 31. janúar, 1906 8,8 Súmatra Indónesía 25. nóvember, 1833 8,8 Heimild: Jarðskjálftamiðstöð Bandaríkjanna, USGS STÆRSTU SKJÁLFTARNIR Atlantshaf Indlandshaf Kyrrahaf Í TÓKÝÓ Mölbrotinn varningur í postulínsbúð í Tókýó eftir risajarðskjálftann í gærmorgun. Skemmdir voru afar mismunandi eftir borgarhlutum. NORDICPHOTOS/AFP ÁRNI KRISTJÁNSSON Í skoðun var fram eftir degi í gær hvort senda ætti íslensku alþjóða- björgunarveitina til Japans, vegna jarðskjálftanna sem þar urðu í gærmorgun. Sveitin var sett á svokallað vökt- unarstig klukkan átta um morgun- inn. „Það felur í sér að stjórnend- ur sveitarinnar fylgjast vel með ástandinu og því hvort japönsk stjórnvöld biðji um aðstoð frá alþjóðasamfélaginu,“ segir í til- kynningu. Um hádegi í gær voru 48 alþjóðarústabjörgunarsveitir á því stigi. Síðdegis var afráðið að sveitin færi ekki af stað. Hefði komið til þess kom fram í tilkynningunni að það taki sveitina um fjórar klukku- stundir að undirbúa sig áður en haldið yrði af stað. - óká Vakt fram eftir degi hjá rústabjörgunarsveitinni: Fjóra tíma að hafa sig til Í PORT AU PRINCE Íslenska rústabjörgunarsveitin var með þeim fyrstu til Haíti eftir skjálfta þar í janúar í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Varðskipið Þór, sem er í smíðum hjá ASMAR skipasmíðastöðinni í bænum Conception í Síle, var dregið út á flóann við bæinn til að forða skemmdum vegna mögu- legrar flóðbylgju af völdum jarð- skjálftans við Japan í gær. Skipið skemmdist nokkuð í febrúar í fyrra þegar flóðbylgja af völdum skjálfta úti fyrir ströndum Síle reið yfir skipasmíðastöðina. „Búnaður af skrifstofu starfs- manna hefur verið fluttur um borð í varðskipið og vonast er til að með því að draga skipið út í fló- ann sleppi það við skemmdir sem hugsanlega gætu orðið ef skipið væri við bryggju,“ segir í tilkynn- ingu Landhelgisgæslunnar. - óká Ekki hætt á skemmdir aftur: Þór var forðað frá flóðbylgju Hugurinn hjá Japönum Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sendi Naoto Kan, forsætis- ráðherra Japans, samúðarkveðjur fyrir hönd íslensku þjóðarinnar vegna hamfaranna. Í tilkynningu kemur fram að þær hamfarir sem orðið hafi í Japan vegna jarðskjálftans séu átakanlegar og hugur Íslendinga sé með japönsku þjóðinni. JAPAN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.