Sameiningin - 01.05.1924, Blaðsíða 18
144
heimtumaSur, fyrirlitinn af þjóð ■sinni; auSugur, en veraldlegar
eignir eru þrándur í götu margra í hjálpræðisefnum fsjá si'ðustu
lexíu) ; mannþröngin var mikil, og 'hann var maöur lítill vexti. Þó
gafst hvorugur upp. Og báðir ööluSust það, sem þeir leituSu eftir,
og miklu meira. Sá ‘fer aldrei tómhentur heim aftur, sem leitar
frelsarans fMatt. 7 ,7n; Jóh. 6, 37). “Sigursæll er góöur vilji.”
c) Og meira aö segja, þaö voru einmitt ófullkomleikarnir, vand-
kvæöin, sem komu mönnum þessum til aö leita Jesú. Bartímeus
‘hrópaöi svo ákaft, af því>að hann var blindur. Zakkeus leitaöi ríkt
eftir þvi, að fá komiö auga á frelsarann, líklega fyrir þá sök, aö
hann >sjálfur tilheyrði þeint fyrirlitna flokki, sem Jesús haföi svo
oft áður verið mildur við. Og hann hóf sig upp yfir mannfjöld-
ann, upp í eikina, af því að'ihann var lítill vexti og gat ekki komið
auga á frelsarann með öðru móti. Þannig á hver nýtur maður aö
láta ófullkomleikana knýja sig áfram. Og þvi meiri sem þörfin er
og óverðleikinn, því meiri ástæðu; höfum vér til að leita frelsarans
þMatt. 11, 28n; 2. Kor. 12, 9). d) Fólkið, mannfjöldinn, var báðurn
til hindrunar, þegar þeir vildu nálgast Krist. Þó var mannfjöldinn
í fylgd með Jesú. Þaö kom oft fyrir, að lærisveinarnir, í vanvizktt
og skammsýni, vildu gjöra þá afturreka, sem leituðu á fund frels-
arans þsjá t. d. Mark. 10, 13). Það getur kornið fyrir enn, aö
jafnvel kristnir menn verði okkur til hneykslunar, eða hindri okkur
á einhvern hátt í.iþeirri -leit. Og þar er auðvitað annar mann-
fjöldi, heimsins börn, alt af til hindrunar. En það er ekki komið
undir öðrum mönnum, hvort við finnum frelsarann eða ekki. Þeg-
ar hjartað leitar hans, þá kemst þar enginn inaður upp á milli. ej
Bartímeusi var sagt, að Jesús frá Nazaret færi hjá. Svo gullvægt
tækifæri gat sá maður ekki látið ganga úr greipum sér. Jesús frá
Nazaret “fer hjá” á hverjum degi, svo lengi sem við lifurn. Hvað
gjörum við? f) Jesúsi ilætur sér ant um hvern einstakan. Veitir
þeim blinda sjón, kallar á Zakkues með nafni, sækir hann heini og
veitir honum andlega viðreisn. Hið isama sjáum við alstaðar í
æfisögu frelsarans. Honum er umhugaðj |um einstaklingana—uim
okkur eins og aðra. g) Það sem Jesús gjörði fyrir þessa tvo menn,
það vill hann, í andlegum skilningi, gjöra fyrir okkur -alla. Hann
er ljós okkar, líf og frelsi JJóh. 1, 4.-9; 8, 12. 31n). Hann sækir
oklcur heim; vill veit heimili okkar hjálpræði JJóh. 14, 23; Post. 16,
31). Farísear mögluðu, eins og vant var, af því að Jesús heimsótti
tollheimtumanninn; en gleymum því aldrei, að það eru einmitt
syndugir menn og óverðugir, sem Jesús vill heimsækja—til þess að
frelsa þá (10. v.J. h) Gáum að ávöxtunum, sem menn þessir báru;
Bartímeus fylgdi Jesú eftir og lofaði Guð. Zakkeus , gaf helming
eigna sinna, og bauðst til að gjalda ferfalt, ef hann hefði i haft
nokkuð af nokkrum.
Sálmar: 146, 237; 224, 154.