Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1924, Blaðsíða 30

Sameiningin - 01.05.1924, Blaðsíða 30
156 “Jæja, Davíö minn. Og þegar kyröin og þögnin var sem mest, heyröir þú skrölt á veginum aö baki þér. Þú leizt við og hugðir, að einhver kæmi akandi á ei'tir þér, en sást engan. Þú leizt við hvað eftir annað, og þér fanst þetta vera undarlegast af öllu, sem fyrir þig hafði borið. Þú heyrðir skröltið skýrt og greinilega. En hvaðan kom það ? Þetta var um hábjartan dag. Ekkert gat skygt á, á neinn veg, og ekkert annað hljóð heyrðist. Þar gat ekki verið um að villast. Þú skildir ekki, hvernig það gaf átt sér stað, að þú heyrðir skrölt og hjólatíst, en sást engan vagn- inn. En þú vildir alls ekki kannast við, að* neinar kynjar væru á seiði. Hefðirðu hugsað á annan veg, þá hefði mér tekist að láta þig sjá mig. áður en það var um! seinan.” Davíð mundi nú glögt eftir öllu saman. Hann mundi, hvernig hann hafði skimað i allar áttir, gægst yfir girðingar og leitað í skurðum, til þess að komast á snoðir um, hvað væri að elta hann. Loksins hafði gripið hann geigúr, svo að hann flúði undan þess- um ófögnuði heim á einn bæinn. Þegar hann kom út þaðan aftur, var alt þagnað. “Þetta var nú í -eina skiftið, sem eg sá þig árið sem leið," segir Grímur. “Eg leitaði allra ráða, sem eg kunni, til þess að þú fengir séð mig; en eg kornst ekki nær þér en svo, að þú heyrðir skröltið. Það var eins og bundið væri fyrir augun á þér.” “Það er satt, sem hann segir,” hugsar Davíð; “eg heyrði skrölt- ið. En hvað sannar það? Ætlast hann til að eg trúi þvi, að það hafi verið hann, sein ók á eftir mér á veginum? Hver veit nema. eg hafi haft orð á þessum fyrirburði við einhvern, og sá aftur sagt Grími frá?” Grímur laut nú ofan að Davíð og talaði við hann svo innilega, sem hann væri að koma vitinu fyrir óværan krakka. “Davíð minn,” segir hann. “Þér er ekki til neins að þverskall- ast. Það er til of mikils ætlast, að þú skiljir, hvað fram við þig er komið ^jálfan. Hitt veiztu fullvel, að eg, sem nú á tal við þig, er ekki lifandi maður. Þú hefir sannfrétt látið mitt, en vilt ekki kannast við það. Og þó að þú hefðir ekki frétt það, þá hefirðu nú séð mig koma akandi í kerrunni þarna. Þú veizt, Davið, að í henni ferðast enginn maður lifandi.” Og hann bendir honum á kerruskriflið sitt, “Horfðu ekki á kerruna eina út af fyrir sig,” segir hann. “Líttu um leið á trén hinu megin við hana.” Davið gerir svo; og þá fyrst verður hann að kannast við það með sjálfum sér, að það er dularfult, sem fyrir hann ber. Því að hann sér -trén í gegn um kerruna. “Þú hefir heyrt málróminn minn mörgum sinnum1,” segir Grímur. “Þú hlýtur að taka eftir því, að nú er hann öðruvisi en áður.” Davíð verður að kannast við það. Grímur hafði alt af haft fallegan málróm, og það hafði þessi ökumaður líka, en þó með alt

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.