Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.05.1924, Qupperneq 22

Sameiningin - 01.05.1924, Qupperneq 22
148 sem við þráum. Biöjum Guö aö foröa okkur frá því yfirskini guð- hræðslunnar, sem tignar frelsarann í orði, afneitar 'honum í verki, og hafnar honum, þegar hann vitjar hjartans. fSjá 2. Tím., 3, 5; Heb. 6, 6). Mannfjöldinn leiðir Krist inn í borgina með fagnaðar-hrópum á pálmasunnudag, en hrekur hann út þaöan, með krossfestingar- hrópum, fimm dögum síðar. Hefði hann látið aö óskum þjóðarinn- ar og kent eins og höfðingjarnir vildu, þá hefði hann aldrei verið krossfestur—og aldrei risiö upp frá dauðum. Vinsældir eru sem fok-sandur, en velþóknun Guðs er eilíft bjarg. í vinsældum Krists er auðvelt að fylgjast með fjöldanum og hrópa hósanna; en það er alt erviðara, að vaka með Jesú í Getse- mane, kannst við hann í höll Kaífasar, og fylgja honum til GoJgata. Við erum ekki kristnir, nema við fylgjum honum jafnt i blíðu og stríðu, vinsældum og óvinsældum. “Jesús grætur, heimur hlær.” í hrygðinni ber hann syndir okkar. Þær stinga hann í hjartað. Enginn okkar hefir vit eða hjartahreinleik til að Ihryggjast yfir sínum eigin syndum eins og þær hryggja frelsarann. Sálmar: '79; 80; 81; 82; 135; 136; 155. 42. LBXÍA : Jesús leysir úr spurningum óvina sinna—Matt. 22, 15—33. MINNIST.: Gjaldið þá. keisaranum þaS, sem keisarans er, og Guði það, sem Guðs er.—Matt. 22, 21. Bkki er hann Guð dauðraj lieldur lifenda.—Matt. 22, 32. Farísear og liöfuðprestar ömuðust við fagnaðarlátum fólksins, þegar Jesús kom til borgarinnar; en frelsarinn tók svari þeirra, sem heiðruðu hann (%úk. 19, 39; Matt. 21, 14-17J. Eklci þorðu óvin- irnir að leggja hendur á Jesúm í musterinu, því að fólkið var með honum ('Lúk. 11, 47n). Fékk hann því tóm til að kenna þar óá- reittur fram eftir vikunni. Á næturnar gisti hann hjá vinurn sínum í Betaníu þMatt. 21, 17n; Mark. 11, 19). Fyrsta morguninn, þegar hann kom frá Betaníu, formælti hann fíkjutré, sem var laufgað, en bar engan ávöxt. Næsta dag var tréð visnað upp. ('Mark. 11, 12- 14; 20-25J. Jesús notaði tælcifærið til að lýsa krafti trúarinnar fyr- ir lærisveinum sínum. En fíkjutréð visanaða minnir okkur líka á afdrif hræsnarans, sem ber mikið laufskrúð í orði, en engan ávöxt í verki fsbr. Matt. 7, 19; Jóh. 15, ln). Tóku nú höfðingjarnir að ýta við ljonum í orði, fyrst annað tókst ekki; þeir spurðu, hvaða vald hann hefði til að kenna; en Jesús svaraði með því að spyrja þá um vald Jóhannesar skirara,

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.