Fréttablaðið - 12.03.2011, Page 32

Fréttablaðið - 12.03.2011, Page 32
12. mars 2011 LAUGARDAGUR32 Söngelskir skóla- krakkar slá í gegn Sjónvarpsþættirnir Glee segja frá framhaldsskólanemum í söngklúbbi sem starfar undir stjórn spænskukennarans Will Schuester. Bryndís Hjálmars- dóttir hitti nokkra af leikurum þessara vinsælu þátta í London. Matthew Morrison leik-ur spænskukennarann jákvæða Will Schuester sem vill hefja Glee-klúbbinn í Pro- spect High School aftur til vegs og virðingar. Það gengur hins vegar ekki þrautalaust fyrir sig. Fyrirmyndina að kennar- anum segist Matthew sækja til tveggja kennara sinna í fram- haldsskóla sem hann er enn í góðu sambandi við. Sjálfur segist Matthew hafa verið í svipuðum klúbbi og Glee þegar hann var í framhaldsskóla, þar sem áhersla var lögð á dans og söng. Spurður hvernig hann hafi verið í skóla segir Matthew: „Ég var nú bara ósköp venju- legur í skóla, eyddi miklum tíma í fótbolta og í leikfélaginu og átti vini úr báðum hópum þannig að ég upplifði bæði líf fótboltastrákanna og leiklistar- krakkanna. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég var valinn ballkóngur [prom king] á lokaársball- inu í fram- haldsskóla,“ segir hann og hlær vandræða- lega. Matthew er mikill fótbolta- áhugamaður og spilaði sjálf- ur í fram- halds- skóla. Hann minn- ist þess að hafa þurft að velja á milli fótboltans og leiklistarinnar. Hann sjái svo sannarlega ekki eftir því að hafa valið leiklistina því hún gefi honum svo mikið. Það sem meira er: Matthew tók leiklistina fram yfir ástina. „Ég vinn svo stíft að ég hef eigin- lega ekki tíma til að sinna neinu sambandi. Í upphafi þáttarað- arinnar átti ég kærustu en þar sem ég var stanslaust að vinna gekk það ekki upp. Ég hef lært að leiklistin getur verið ein- manaleg atvinnugrein en hún er þess virði þar sem ég hef brenn- andi áhuga á henni.“ Í fyrra sat Matthew fyrir í myndatöku fyrir tímaritið Vogue þar sem grjótharðir kviðvöðvar hans sáust og vöktu myndirnar mikið umtal. Spurð- ur hvernig hann nái að halda sér í svona góðu formi segist Matthew hafa æft ótrúlega stíft þegar hann vissi að hann væri á leið í myndatöku. „Ég ætlaði ekki að sýna á mér bumbuna við hliðina á fyrirsætunum. Um leið og myndatakan var búin fór ég hins vegar og át hamborgara því ég hafði verið svangur síð- astliðinn mánuðinn.“ Spurður hvaða leikarar hafi haft áhrif á hann segir Matt- hew: „Marlon Brando og Paul Newman hafa haft mikil áhrif á mig sem leikara og ég er líka sérstak- lega mik- ill aðdá- andi James Dean.“ ■ Tók leiklistina fram yfir ástina Amber Riley leikur hina hæfileikaríku en skapmiklu Mercedes Jones. Riley finnst hún sjálf oft vera eins og stóra systir Mercedes, hún skilji hana svo vel. „Skólinn sem ég var í lagði meiri áherslu á íþróttir en leiklist og neyddist ég því til að gera hluti upp á eigin spýtur, átti vini í hinum ýmsu hópum og var meðlimur í leikfélaginu.“ Riley segist muna eftir öllum karakterunum sem Glee gefur innsýn í úr sínum eigin fram- haldsskóla, klappstýrurnar, íþróttastrákana, þá sem hafa áhuga á leiklist og svo fram- vegis. Glee-þættirnir varpi ljósi á lífið í bandarískum grunn- og framhaldsskólum en Riley vonar að þættirnir geti hjálpað unglingum að sigrast á fordóm- um. „Þættirnir gefa innsýn í líf krakka sem eru öðruvísi en maður sjálfur og vonandi hjálpa þeir krökkum að öðlast betri skilning á öðru fólki. En ég tel að ein aðalástæða þess að þátt- unum hefur vegnað svona vel séu lögin sem eru sungin í þátt- unum. Handrit og tónlistarval Ryans Murphy [höfundar þátt- anna] er stórkostlegt og fléttast ótrúlega vel saman.“ Margir gestaleikarar hafa komið fram í þáttunum. Þegar Amber er spurð hvern hana langi mest að fá sem gestaleik- ara segist hún vilja fá Queen Latifah í þáttinn sem móður Mercedes eða frænku. Amber sjálf kemur úr tónelskri fjöl- skyldu. „Móðir mín ól mig upp við margs konar tónlist og ég varð svo heilluð að ég byrjaði strax að syngja og kom fyrst opinberlega fram þegar ég var tveggja ára.“ Amber segir að meðleikarar hennar úr Glee séu orðnir eins og hennar önnur fjölskylda. „Við gerum allt saman frá því að vinna, hanga yfir bíómyndum og borða pitsu og stundum ríf- umst við eins og systkini.“ Fáir vita að Amber fór í áheyrnarprufur fyrir Amer- ican Idol en var hafnað. Eftir að hún sló í gegn með Glee hitti hún Randy Jackson, einn dóm- ara American Idol, og stríddi honum á því að hafa hafnað henni. „Hann ætlaði varla að trúa því að mér hefði ekki verið hleypt í gegn og hann bætti svo við að ef ég hefði sungið fyrir hann hefði hann pottþétt hleypt mér í næstu umferð. Ég svaraði í gríni að hann hefði misst af tækifærinu en gæti bætt mér það upp með því að bjóða mér að koma sem gestadómari í einn þáttinn.“ ■ Komst ekki áfram í American Idol HRESS Krökkunum í Glee er fátt óviðkomandi þegar tónlist er annars vegar. Hér sjást þau taka lag úr Rocky Horror Picture Show. Glee-klúbbar hafa þekkst í enskum og amerískum skólum um aldabil. Upphaflega skipuðu þá karlar sem sungu þríraddað en smám saman tóku hefðbundnir kórar við víðast hvar á Bretlandi. Klúbbarnir hafa þó lifað í bandarískum framhalds- skólum. Elsti glee-klúbburinn í Bandaríkjunum var stofnaður í Harvard-háskóla 1848 svo dæmi séu tekin. Sjónvarpsþættirnir Glee gerast í Prospect High School, sem sagt í framhaldsskóla þar sem nemendur eru á aldrinum 14 til SÖNGHÓPAR SEM BYGGJA Á GAMALLI HEFÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.