Fréttablaðið - 12.03.2011, Side 59

Fréttablaðið - 12.03.2011, Side 59
matur 5 í eggjablöndu og hrærið vel með píski. Bætið rjómaafgangi út í og hrærið varlega með sleif. Bætið hindberjum svo út í og hrærið létt. SAMSETNING TERTUNNAR ½ l þeyttur rjómi fer í að hjúpa köku ½ krukka af blandaðri berjasultu smurð á svampbotna Smyrjið svampbotn með fjórðungi úr krukku af blandaðri berjasultu. Setjið helming hindberjarjóma ofan á svampbotn og marengsbotn ofan á. Hinn helmingur hindberjarjóma fer ofan á marengs. Smyrjið síðari svampbotn með öðrum fjórðungi af blandaðri berjasultu. Leggið á hvolf ofan á hindberjarjómann. Þekið kökuna með þeyttum rjóma. Fletjið út sykurmassa eða marsípan og leggið yfir. Skreytið að vild. MARENGSTERTA gleður segir Kristín Eik og tekur fram að tertur skreyttar með sykurmassa séu alveg jafn bragðgóðar og þær líta vel út. „Sykurmassi er hreint sælgæti, hvort sem hann er heimagerður eða keyptur tilbúinn frá viður- kenndum merkjum. Það er auðvelt að fletja hann út og tekur örfáar mínútur að lita hann. Þessi terta er því sáraeinföld og hægt að töfra hana fram með öllu á innan við klukkutíma, þótt alltaf sé best að setja svampbotna, frómas og mar- engs saman deginum áður,“ segir Kristín Eik og bendir á að tertan sé einnig ljúffeng hjúpuð marsi- pani, en einnig með rjóma, eins og gamaldags hnallþóra. „Það er ekkert skemmtilegra en að bjóða gestum heim í sunnudags- kaffi því það þjappar fólki saman og allir verða glaðir að fá sæta- brauð. Falleg og góð kaka lifir lengur í minningunni en góð steik, því fólk hugsar jafnan á öðrum nótum um sælgæti.“ - þlg Karamellukrem er ótrúlega gott og hentar við ýmis tækifæri, ofan á kökur, með ís og öðrum eftirrétt- um. Eftirfarandi hentar vel á kökur. KARAMELLUKREM 1 peli rjómi 2-2½ msk. síróp 120 g sykur 65 g smjörlíki Blandið saman rjóma, sykri og sírópi og sjóð- ið við vægan hita þar til allt þykknar. Hrærið allan tímann. Bætið því næst smjörlíki út í og hrærið vel saman við. Kælið og setjið ofan á kökuna. KARAMELLUKREM Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.