Fréttablaðið - 12.03.2011, Síða 70

Fréttablaðið - 12.03.2011, Síða 70
12. mars 2011 LAUGARDAGUR42 timamot@frettabladid.is ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON RITHÖFUNDUR (1888 eða 9-1974) átti afmæli þennan dag. „Ríki vísindamannsins er bæði af þessum heimi og öðrum. Hann hangir í lausu lofti milli tveggja heima.“ „Ég býst við að gera mér einhvern dagamun en hann verður á hóflegu nótunum,“ segir Páll Magnússon, bæj- arritari Kópavogs, sem stendur á fer- tugu í dag. Hann kveðst ekki eiga von á neinum stórum breytingum við það að komast yfir á fimmtugsaldurinn. „Það er líkt með mig og marga aðra að ég tek ekkert eftir því að ég eldist. Sé bara fólk í kringum mig stækka og eldast,“ bætir hann við glaðlega og á þar eflaust ekki síst við strákana sína, Magnús Má tólf ára og Pétur Arnar sjö ára, sem hann á með konu sinni Aðal- heiði Sigursveinsdóttur. Hjarta Páls slær í Kópavoginum. Þar hefur hann verið bæjarritari frá 2006. Bernskuheimili hans stóð við Lundar- brekkuna og nú er hann kominn upp í efri byggðir bæjarins, nánar tiltekið í Salahverfið. „Þar er sko alvöru vetur núna,“ segir hann hlæjandi. Þótt Páll sé ungur enn segir hann hafa verið öðruvísi umhorfs í Aust- urbæ Kópavogs þegar hann var strák- ur en nú er. Þéttbýlið hafi til dæmis ekki náð niður fyrir Nýbýlaveg. „Þar sem göturnar Ástún og Daltún eru stóð býlið Ástún. Við krakkarnir kölluðum það svæði alltaf Biggatún eftir bóndan- um á bænum og sóttum mikið þangað, fengum aðeins að kynnast búskapnum og lékum okkur á túninu,“ rifjar hann upp. „Níu ára var ég reyndar send- ur í alvöru sveit og var fimm sumur í Breiðafirðinum hjá frænda mínum, fyrst eitt á Hvallátrum og svo fjög- ur í Flatey. Þar voru kýr og kálfar en féð var að mestu farið í sumarhagann þegar ég kom vestur á vorin. Þarna var líka eggja- og dúntekja og veiðar bæði á fugli og fiski, mjög fjölbreytt líf sem ég tók þátt í eftir því sem ég hafði vit og getu til og þykir gaman að hafa kynnst.“ Í Flatey kveðst Páll hafa búið í Póst- húsinu er stendur á brekkubrúninni þar sem gatan liggur ofan í þorpið. „Þangað kom fólk sem var í sumar- húsunum til að hringja og fá póst- afgreiðslu,“ rifjar hann upp. Páll á að baki hefðbundna skóla- göngu í Snælandsskóla og varð stúdent frá Menntaskólanum í Kópavogi. Hann er einnig með BA-próf í guðfræði og meistaragráðu í opinberri stjórn- sýslu frá Háskóla Íslands. Nítján ára var hann kominn á kaf í pólitík. „Það var eiginlega óvænt,“ segir Páll, sem var þriðji maður á lista Framsóknar í Kópavoginum fyrir sveitarstjórnar- kosningarnar 1990 og sat sem vara- bæjarfulltrúi tvö kjörtímabil. Árið 1999 varð hann aðstoðarmaður ráð- herra í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt- inu og starfaði þar með þremur ráð- herrum. „Áhugi á pólitík hafði fylgt mér frá barnæsku enda var faðir minn, Magnús Bjarnfreðsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi á sínum tíma,“ segir hann en tekur fram að hann sé ekki í pólitísku starfi í dag. „Ég kúplaði mig að mestu út úr stjórnmálunum 2006 en það er vissulega erfitt að má af sér stimpil- inn.“ gun@frettabladid.is PÁLL MAGNÚSSON BÆJARRITARI KÓPAVOGS: ER FERTUGUR Í DAG Sé fólkið í kringum mig eldast BÆJARRITARINN FERTUGUR „Þar sem göturnar Ástún og Daltún eru nú stóð býlið Ástún. Við krakkarnir kölluðum það svæði alltaf Biggatún eftir bóndanum á bænum og sóttum mikið þangað,“ rifjar Páll upp um æskuárin í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, Nönnu Helgu Ágústsdóttur til heimilis á Hrafnistu, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 2B á Hrafnistu fyrir frábæra umönnun og hlýhug. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Margrét Ámundadóttir Guðmundur Gunnar Einarsson Jón Örn Ámundason Erna Hrólfsdóttir Elskulegur bróðir okkar, Oddur Helgason mjólkurfræðingur frá Gvendarstöðum, síðast til heimilis að Hraunbæ 150, lést að Sóltúni þann 6. mars. Útförin fer fram frá Lágafellskirkju kl. 15.00 þriðjudaginn 15. mars. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjúkrunarheimilið Sóltún. Rannveig Helgadóttir Jórunn Helgadóttir Kristín Helgadóttir Minningarathöfn um elskulega systur okkar, Önnu Guðnýju Brandsdóttur Olsson fyrrv. ballettdansara í Svíþjóð, sem andaðist hinn 24. febrúar sl., verður í Lágafellskirkju föstudaginn 18. mars kl. 15.00. Jarðsett verður frá Barkåkrakirkju í Skepparkroken kl. 13.00 sama dag. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Brandsóttir Guðrún Brandsdóttir Okkar ástkæri Ólafur Agnar Jónasson fyrrverandi yfirflugvélstjóri, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 16. mars kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Guðrún Jónsdóttir Ása Jónsdóttir Guðmundur Hannesson Óli Hilmar Briem Jónsson Kristín Salóme Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Guðjón Viggó Guðmundsson sjúkraliði, áður til heimilis í Mosfellsbæ, lést á heimili sínu í Horsens í Danmörku fimmtudaginn 10. mars. Lára Ólafsdóttir Greta Guðjónsdóttir Ólafur Ingvar Guðjónsson Salgerður Jónsdóttir Ólafur Ásmundsson Lára Vigdís Ólafsdóttir Guðjón Valur Ólafsson 70 ára afmæli Jón Marteinn Guðröðarson Ég er að verða 70 ára og af því tilefni verður síðasta sjóferðin. Það verður ýtt úr vör í þessa ferð 19. mars frá Haukahúsinu í Hafnarfi rði. Brottför áætluð kl. 19.00. Þeir sem vilja vera í áhöfn eru vinsamlegast beðnir um að lögskrá sig og sína sem fyrst á jonmartein@gmail.com eða sms 862 5008, sími 845 3555 Kveðja Jón Marteinn Guðröðarson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför vinar okkar og frænda, Þórólfs Valgeirs Þorleifssonar Blikahólum 12, Reykjavík. Ingibjörg Benónísdóttir Matthildur Eiríksdóttir systkinabörn og aðrir aðstandendur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Erna E. Olsen Eiðistorgi 5, Seltjarnarnesi, sem lést 5. mars, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 14. mars kl. 15.00. Þeim sem vilja minn- ast hennar er bent á FAAS – samtök aðstandenda Alzheimersjúklinga. Við viljum þakka Jóni Snædal lækni og starfsfólki Landakotsspítala, deild L-4, fyrir alúðlega og hlýja umönnun. Jón Ágúst Ólafsson Ellen Ragnheiður Jónsdóttir Hjörtur Cyrusson Arnar Jónsson Steinunn H. Hannesdóttir Róbert Jónsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.