Fréttablaðið - 12.03.2011, Síða 74

Fréttablaðið - 12.03.2011, Síða 74
12. mars 2011 LAUGARDAGUR46 krakkar@frettabladid.is 46 Svör: Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is 1. Hvenær sást Mikki mús fyrst opinberlega? 2. Hvenær á hann afmæli? 3. Hvað hét myndin sem hann birtist í? 4. Hvernig leit hann upp- haflega út? 5. Hverjir eru helstu félagar Mikka? 6. Hvað er Mína mús gömul? 7. Hvað hefur Mikki mús kom fram í mörgum þáttum? Magga fór að kaupa skó. „Hvernig eru þessir?“ spurði skókaupmaðurinn. „Þeir eru dálítið þröngir,“ sagði Magga. „Prófaðu að toga tunguna út,“ sagði skókaupmaðurinn. „Nei, þeið eðu ennþá þðöng- ið,“ sagði Magga. Örn Ingi og Ari voru að tala saman um mat. Örn: -Ég er búinn að borða nautakjöt alla mína ævi og er sterkur eins og naut! Ari: -Skrítið, ég hef borðað fisk alla mína ævi og ég kann samt ekki að synda!!! Móðir við son sinn: Jón læsti lyklana sína inni í bílnum í gær. Við vorum öll mjög áhyggjufull vegna þess að það tók tvo tíma að ná okkur pabba þínum út. 1. Í teiknimynd árið 1928, eða fyrir heilum 83 árum! 2. Hann á afmæli hinn 18. nóvember. 3. Gufubáturinn Villi var fyrsta hljóðteikni- myndin. 4. Hann var með alsvört augu og fékk ekki hvítu í augun fyrr en árið 1938, þegar hann var tíu ára gamall. Ástæðan var sú að Andrés Önd var þá orðinn vinsælli og rétt þótti að lappa upp á útlit Mikka. Um leið fékk hann betri föt. 5. Hann hangir oftast með Guffa, Plútó og Mínu mús, sem jafnframt er kær- astan hans. 6. Mikki mús og Mína mús eru nákvæmlega jafngömul, 83 ára. Þau komu bæði í fyrsta skipti fram í teikni- myndinni Gufubáturinn Villi. 7. Hann hefur komið fram í yfir 150 þáttum og óteljandi blöðum. Hvenær byrjaðir þú að leika? Ég bara man það ekki. Það hefur verið í einhverju skóla- leikriti fyrir löngu síðan. En ég byrjaði að fara á leiklistanám- skeið hjá Leynileikhúsinu þegar ég var 9 ára. Þar var ég í þrjár annir og svo eina önn í Borgar- leikhúsinu. Hvert var fyrsta hlutverkið? Fyrsta hlutverkið sem ég fékk eftir að hafa farið í prufu var rosa skemmtilegt í mjög skrítnu leikriti. Ég lék pabba sem átti son sem var að fara að gifta sig. Svo fór allt í steik og meðal ann- ars voru plöntur á sviðinu sem voru að borða alla. Vinir og ætt- ingjar mínir eru enn að tala um hvað þetta hafi verið skemmti- lega skrítið og fyndið. Hvert er eftirminnilegasta hlut- verk þitt, fyrir utan bíómynd- ina? Ég verð að segja að það var skemmtilegast að fá að leika Hrapp í Óliver Twist í Þjóð- leikhúsinu árið 2009. Það er örugglega það skemmtilegasta sem ég hef gert í mínu litla lífi. Ætlarðu að verða leikari? Ég er ekki alveg viss, ég þarf að hugsa það. En ég er svo ungur að ég hef nægan tíma til að ákveða mig. Okkar eigin Osló er fyrsta myndin sem þú leikur í. Varstu stressaður fyrir framan myndavélarn- ar? Nei, ég var ekkert stressaður því það var svo skemmtilegt og gott fólk sem ég var að vinna með. Mynda- tökumennirnir, leik- stjórinn, hinir leikar- arnir, sminkurnar, þetta var allt svo ynd- islegt fólk þannig að þetta var bara eins og að teikna á blað, auðvelt og skemmtilegt. Var ekkert erfitt að leika á móti öllum þessum stjörnum? Nei, nei. Alls ekki. Þau er öll svo frábær. Svo þekkti ég líka Þorstein fyrir. Hann er giftur einni af bestu vinkon- um mömmu og hann er svo skemmtilegur að ég vissi alveg að þetta yrði ekkert mál. Fór einhvern tímann eitthvað úrskeiðis við tökur á myndinni? Þetta gekk allt rosalega vel og það voru engin stór vandamál. Í einu atriðinu fór ég reyndar alltaf að hlæja þegar ég átti ekki að hlæja, þegar ég var að leika á móti Maríu Hebu Þor- kelsdóttur. Svo var reyndar eitt atriði, svona matarboð, þar sem ég átti að vera að borða snakk. Fyrst var ég rosalega ánægður með að fá að borða snakk og drekka kók í senunni en eins og oft þá þurfti að taka senuna upp oft. Alla vega tíu sinnum eða oftar. Ég borðaði og borð- aði og þegar við vorum búin þurfti ég að hlaupa út og ældi næstum því. Stóð bara þarna og kúg- aðist, var búinn að borða allt of mikið af snakki. Hvað ráðleggur þú þeim krökkum að gera sem langar að leika? Farið í Leynileikhúsið. Það er algjör snilld. Þar eru frábærir kennarar og rosalega skemmtileg námskeið. Krakkarnir eru líka æðislegir. Svo er líka að fylgjast vel með og fara í prufur. Það gengur kannski ekkert alltaf en maður fær reynslu í hvert skipti sem maður fer. Að lokum, ef þú mætt- ir leika hvaða hlut- verk sem er, hvaða hlutverk myndir þú vilja leika? Ef ég væri ógeðslega massaður, ógeðslega nettur og rosa kyn- þokkafullur, þá væri ég alveg til í að leika James Bond. LANGAR AÐ LEIKA BOND Valgeir H. Skagfjörð fer á kostum í bíómyndinni Okkar eigin Osló, sem er nú í bíóum víðs vegar. Þrátt fyrir að vera bara 13 ára hefur hann leikið heilmikið. WWW.CRUCIAL-CREW.ORG/WHAT-IF/ er erlend vefsíða fyrir krakka þar sem hægt er að æfa viðbrögð við ýmsum hættum. Ég verð að segja að það var skemmtilegast að fá að leika Hrapp í Óliver Twist í Þjóð- leikhúsinu árið 2009. Það er örugglega það skemmtilegasta sem ég hef gert í mínu litla lífi. Á Vísi er hægt að horfa á myndskreyttan upp- lestur úr þessum sígildu ævintýrum. Hlustaðu á Dísu ljósálf og Alfinn álfakóng á Vísi Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl- enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.