Fréttablaðið - 12.03.2011, Side 82
12. mars 2011 LAUGAR-54
folk@frettabladid.is
Leikritið Hedda Gabler var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu
á fimmtudagskvöld. Ljós-
myndari Fréttablaðsins tók
púlsinn á frumsýningar-
gestum fyrir sýninguna.
Það var góð stemning meðal frum-
sýningargesta í Kassanum í Þjóð-
leikhúsinu á fimmtudagskvöld
þegar leikritið Hedda Gabler
eftir Henrik Ibsen var frumsýnt.
Kristín Eysteinsdóttir leikstýrir
verkinu en með aðalhlutverkið fer
Ilmur Kristjánsdóttir. Með önnur
hlutverk fara Brynhildur Guðjóns-
dóttir, Eggert Þorleifsson, Harpa
Arnardóttir, Kristbjörg Kjeld,
Stefán Hallur Stefánsson og Valur
Freyr Einarsson.
Finnur Arnar Arnarsson er leik-
myndahönnuður sýningarinnar,
Filippía Elíasdóttir hannar bún-
inga og Barði Jóhannsson samdi
tónlistina. Um lýsingu sér Halldór
Örn Óskarsson en
Bjarni Jónsson
þýddi.
GLEÐI Á FRUMSÝNINGU Í KASSANUM
GLEÐI OG EFTIRVÆNTING Sambýlismennirnir Viðar Eggertsson, leikstjóri og umsjónarmaður Útvarpsleikhússins, og Sveinn
Kjartansson matreiðslumeistari ræddu við Tinnu Gunnlaugsdóttur þjóðleikhússtjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Meðlimir breska strákabands-
ins Blue eru sannfærðir um að
lagið þeirra, I Can, lendi ekki í
neðsta sæti í Eurovision í maí líkt
og gerðist í fyrra með lagið That
Sounds Good To Me. Þeir eru
virkilega spenntir fyrir keppn-
inni og telja ekki að hún eigi eftir
að skemma fyrir ferli þeirra.
„Við teljum ekki að við séum að
eyðileggja feril okkar með því að
taka þátt þrátt fyrir að margir
séu á þeirri skoðun,“ sagði Simon
Webbe úr Blue. „Þetta er frábært
tækifæri til að sýna að við erum
tónleikasveit og erum mættir
aftur eftir tíu ára hlé.“
Ekki neðstir í
Eurovision
BLUE Strákarnir eru spenntir fyrir
Eurovision-keppinni í Þýskalandi í maí.
Noomi Rapace, sem lék Lisbeth
Salander í Millenium-myndun-
um, segir að persóna sín í mynd-
inni Prometheus sé mjög ólík
Ripley í Alien-myndunum. Mynd-
in átti upphaflega að fjalla um
það sem gerðist á undan Alien-
myndunum en þau áform breytt-
ust. Engu að síður verður teng-
ingin við Alien áfram til staðar.
„Þetta er sjálfstæð persóna. Hún
er vísindamaður og mjög gáfuð,“
sagði Rapace. „Ég held að fólk
muni ekki bera hana saman við
Ripley þegar það sér myndina.“
Leikstjóri Promotheus er Ridley
Scott, sem gerði einnig fyrstu
Alien-myndina.
Líkist Ripley
í Alien lítið
Halldór Örn Óskarsson, ljósameistari
sýningarinnar, og Þrúður Vilhjálmsdóttir.
Edda Heiðrún
Backman og Guðrún
Þorvarðardóttir.
Hjónin Páll Hjaltason arki-
tekt og Steinunn Sigurðar-
dóttir fatahönnuður.
Guðrún Daníelsdóttir og Margrét
Helga Jóhannsdóttir leikkona.
Ásta Briem kvik-
myndagerðarmaður
og Katrín Brynja.
24 ár eru á milli Sean Penn og Scarlett Johansson, en samkvæmt fréttamiðlum vestanhafs eru þau nýtt par. Ástin spyr ekki um aldur.
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8,
112 Reykjavík, sími 522 4500 www.ILVA.is
mánudaga - föstudaga 11-18:30
laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18
einfaldlega betri kostur
Brauð með hangikjöti.
490,-
SMURT
BRAUÐ
Nútímalegur veitingastaður þar sem íslenskt úrvals
hráefni er matreitt samkvæmt aldalöngum matarvenjum
frá Miðjarðarhafinu. Glæsilegur bar þar sem stoltið er
hanastélin og stórfenglegt útsýni. Það er Kolabrautin.
Við viljum að þetta verði allt fullkomið þegar við opnum í
Hörpu í maí. Umsóknir óskast á info@kolabrautin.is
www.kolabrautin.is
OKKUR VANTAR:
» MATREIÐSLUMENN
» AÐSTOÐARFÓLK Í ELDHÚS
» FAGLÆRÐA ÞJÓNA
» AÐSTOÐARFÓLK Í SAL OG Á BAR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI FRÓÐLEIKUR
Meiri Vísir.