Fréttablaðið - 12.03.2011, Side 87
LAUGARDAGUR 12. mars 2011 59
Bandaríska hljómsveitin
Maroon 5 ætlar að koma
sér fyrir í hljóðveri 22.
mars og semja frá grunni
nýtt lag á einum sólar-
hring. Viðburðurinn verð-
ur í beinni útsendingu á
netinu og getur fólk um
allan heim því fylgst með
lagasmíðinni.
Hljómsveitin hefur
beðið aðdáendur sína um
að taka þátt í að semja
lagið með því að senda
inn athugasemdir, texta
og hugmyndir sem verður
varpað á einn vegg í hljóð-
verinu. Afraksturinn fer
beint á næstu plötu sveit-
arinnar.
Þessi viðburður er hluti
af nýrri tónlistaráætlun
drykkjarframleiðandans
Coca-Cola sem miðar að
því að gefa ungmennum
kost á að kynnast tónlist-
arsköpun frá fyrstu hendi
og sjá leiðandi listamenn
í bransanum að störfum.
„Lengi hefur Coca-Cola
notað tónlistina til að færa
fólk saman um allan heim,
á viðeigandi og áhrifa-
mikinn hátt,“ segir Joe-
Belliotti hjá Coca-Cola.
„Okkur finnst spennandi
að vinna með Maroon 5.
Þeir eiga sér áhangend-
ur um víða veröld og hafa
samið flotta tónlist.“
Maroon 5 hefur sent frá
sér tvær hljóðversplöt-
ur sem náðu báðar marg-
faldri platínusölu. Þær
heita Songs About Jane
sem kom út árið 2002 og
It Won’t Be Soon Before
Long frá árinu 2007.
Hægt verður að fylgj-
ast með upptökunum á síð-
unni coca-cola.com/music.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 12. mars 2011
➜ Tónleikar
12.00 Listvinafélag Hallgrímskirkju
stendur fyrir hádegistónleikum í dag
kl. 12. Hörður Áskelsson, organisti,
flytur franska barrokktónlist. Séra María
Ágústsdóttir flytur ávarp. Aðgangur
ókeypis.
17.00 Fiðluleikarinn Jane Ade Sutarjo
heldur útskriftartónleika sína kl. 17 í
Listasafni Reykjavíkur. Meðleikarar eru
Richard Simm, píanóleikari, og Grétar
Geir Kristinsson, gítarleikari. Aðgangur
ókeypis.
23.00 Hljómsveitirnar Momentum,
Ask the Slave og Caterpillarmen
halda tónleika á Faktorý í kvöld kl. 23.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
➜ Sýningar
14.00 Danuta Szostak ræðismaður
Póllands á Íslandi mun opna sýninguna
IS(not) í Listasafni Árnesinga kl. 14.
Boðið verður upp á pólskt-íslenskt tón-
listaratriði. Hluti sýningarinnar verður
opnaður í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi kl. 16.
15.00 Listakonan Brynhildur Þor-
geirsdóttir opnar sýningu sína, Hugar-
lundur, kl. 15 í Ásmundarsal Lista-
safns ASÍ. Sýningin stendur til 3. apríl.
Aðgangur ókeypis.
15.00 Sýningin Kvon verður opnuð á
Torginu í Þjóðminjasafni Íslands í dag
kl. 15. Á sýningunni má sjá kjóla hann-
aða af Maríu Th. Ólafsdóttur
16.00 Samsýning nemenda af mynd-
lista- og hönnunarsviði Myndlistaskóla
Reykjavíkur opnar í Hinu Húsinu kl.
16. Sýningin samanstendur af ljósmynd-
um, stuttmyndum og hreyfimyndum.
➜ Umræður
14.00 Guðrún Kristjánsdóttir verður
með listamannsspjall í tengslum við
sýningu hennar, SÝNI, í Gallerí Ágúst.
Spjallið hefst kl. 14. Allir velkomnir.
➜ Tónlist
14.00 Hilmar Örn Hilmarsson fremur
hljóðgjörning á sýningunni Hljóðheimar
í dag kl. 14. Sýningin er í Listasafni
Íslands. Verkið verður flutt í þetta eina
skipti.
➜ Myndlist
15.00 Málverkasýning Jóns Henrys-
sonar, Innsetning, verður opnuð í
Listasafni ASÍ kl. 15. Safnið er opið frá
kl. 13-17 alla daga nema mánudaga.
Aðgangur ókeypis.
15.00 Mjólkur-
búðin er nýtt
sýningargallerí
í Listagilinu á
Akureyri. Í tilefni
opnunarinnar sýna
myndlistakonurnar
Mireya Samper
og Ásta Vilhelm-
ína Guðmunds-
dóttir verk sín í
Sjávarmáli kl. 15.
16.00 Gallerí Tukt opnar samsýningu
33 nemenda af Myndlista- og hönn-
unarsviði Myndlistaskólans í Reykja-
vík kl. 16. Sýnt verður í Hinu Húsinu.
Sýningin samanstendur af ljósmyndum,
stuttmyndum og hreyfimyndum sem
unnin hafa verið seinustu vikur.
➜ Útivist
10.00 Landssamtök hjólreiðamanna
bjóða í hjólreiðaferð kl. 10. Lagt verður
af stað frá Hlemmi og hjólað í 1-2 klst.
Allir velkomnir. Þátttaka ókeypis.
Sunnudagur 13. mars 2011
➜ Tónleikar
15.00 Í tilefni af
útkomu geisla-
disksins RHYMES
bjóða Stórsveit
Reykjavíkur, Björn
Thoroddsen,
Richard Gillis og
Salurinn og upp á
tónleika í Salnum
í Kópavogi í dag
kl. 15. Tónleik-
arnir hefjast kl. 15.
Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir.
20.00 Sérstakir hátíðartónleikar
verða í Hjallakirkju í tilefni af tíu ára
afmæli Björgvinsorgelsins. Kór Hjalla-
kirkju syngur. Aðgangseyrir er kr. 2000.
➜ Félagsstarf
14.00 Fjölskylduguðsþjónusta verður
kl. 14 í dag í Óháða söfnuðinum. Séra
Pétur sér um töfrabrögð og kór safn-
aðarins sér um söng undir stjórn Árna
Heiðars Karlssonar, organista. Kaffi og
kökur gegn vægu gjaldi.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Í BEINNI Á NETINU Maroon 5 tekur upp nýtt lag í beinni útsend-
ingu á netinu 22. mars. NORDICPHOTOS/GETTY
Semja lag í beinni útsendingu
Öll fargjöld miðast við fl ug báðar leiðir, skattar og gjöld innifalin. Verð miðast við 9. febrúar 2011 og framboð er takmarkað af lægstu fargjöldum. Ferðatímabil til Stokkhólms, Kaupmannahafnar, Stafangurs og Tromsø,
gegnum Ósló, er 26. apríl – 9. desember 2011. Ferðatímabil til Bangkok, gegnum Kaupmannahöfn, er 26. apríl – 16. júní eða 1. september – 9. desember 2011. Framboð getur verið takmarkað á almennum frídögum.
* Borgarkort fylgja ef keypt er fl ug í mars, báðar leiðir, til Kaupmannahafnar eða Stokkhólms, ferðatímabil 1. apríl til 31. maí, og eru háð takmörkunum.
fl ysas.is
Ávallt með SAS
Engin dulin gjöld
23 kg farangur án endurgjalds
Frí vefi nnritun
EuroBonus punktar
25% barnaafsláttur
Reykjavík Báðar leiðir frá
Kaupmannahöfn Kr. Stokkhólmur Kr. Ósló Kr. FJÖLDI LÁGRA FARGJALDA Á SVEIMI.
Bókið fyrir 21. mars 2011.
Reykjavík Báðar leiðir frá
Stafangur Kr. Tromsø Kr.
Bangkok Kr. FRÍTT 24
tíma
Kaupman
nahafnar-
eða
Stokkhólm
sborgarko
rt*
fl ysas.is/c
itycard