Fréttablaðið - 12.03.2011, Page 94
12. mars 2011 LAUGARDAGUR66PERSÓNAN
„New York var alveg æðisleg.“
segir förðunarfræðingurinn Ísak
Freyr Helgason, en Fréttablaðið
sagði frá því fyrir áramót að Ísak
hefði í hyggju að flytja af landi
brott og reyna fyrir sér í tísku-
bransanum erlendis.
Ísak og vinur hans, Þorsteinn
Blær Jóhannsson, héldu því til
New York í janúar í von um að
fá einhverja vinnu þar ytra. „Við
náðum frekar lítið að vinna þarna
úti, enda er borgin ótrúlega hröð
og endalaus „aksjón“ í gangi. Ég
var samt í sambandi við fullt af
fólki og safnaði netföngum og
tengiliðum,“ segir Ísak.
Þeir félagar skelltu sér út á
lífið á meðan á dvölinni stóð og
rákust þá á hinn heimsfræga
kynskipting Amöndu Lepore.
„Amanda var alveg ótrúlega
eðlileg. Hún kom og talaði við
mig og ég pældi ekkert í því hvað
hún væri strekkt í framan, hún
virkaði bara ótrúlega jarðbund-
in og fín,“ segir Ísak. Ferðinni
var fljótlega heitið heim á leið,
enda nóg af verkefnum fyrir Ísak
hér á landi. „Það er búið að vera
mikið að gera síðan ég kom heim,
alls konar verkefni og svona. Ég
ákvað því bara að bíða aðeins
með flutninga og fara bara út
þegar ég er búinn með mitt hér
heima,“ segir Ísak, en hann er
núna á kafi í undirbúningi fyrir
Reykjavík Fashion Festival. Ísak
sá einnig um að hanna förðunina
fyrir dansverkið Sinnum þrír sem
Íslenski dansflokkurinn setur
upp í Borgarleikhúsinu nú í mars.
Þrátt fyrir að hafa fílað New
York í tætlur ætlar Ísak ekki að
flytja þangað en er staðráðinn í
að finna sig í annarri stórborg.
„Ég fíla mig miklu betur í Evr-
ópu, í borg eins og London, og
vonast til að flytja þangað í júní
eða einhvern tímann yfir hásum-
arið.“ kristjana@frettabladid.is
ÍSAK FREYR HELGASON: SAFNAÐI NETFÖNGUM OG TENGILIÐUM
Hitti heimsfrægan
kynskipting í New York
MUN EÐLILEGRI EN HÚN LÍTUR ÚT FYRIR AÐ VERA Ísak hitti Amöndu Lepore á klúbbi í New York og segir hann að Amanda hafi
virkað ótrúlega eðlileg og fín.
„Þetta leggst mjög vel í mig,“
segir Eyjamaðurinn Magnús
Berg Magnússon. Hann og nokkr-
ir félagar hans sem eru búsett-
ir í Kaupmannahöfn ætla í dag
að minnast afreksins þegar Guð-
laugur Friðþjófsson synti sex kíló-
metra í land eftir að Hellisey fórst
skammt undan Vestmannaeyjum.
Þeir synda í 25 metra sundlaug í
Frederiksberg í Kaupmannahöfn
og átti sundið að hefjast klukkan
sjö í morgun að staðartíma. Ferð-
irnar verða 240 ætli þeir að synda
kílómetrana sex. „Það er mjög
auðvelt að koma sér í gírinn þegar
maður hugsar út í að maðurinn
synti þetta í ísköldum sjónum um
hávetur. Þetta er lítið mál þegar
maður er kominn af stað,“ segir
hinn 24 ára Magnús Berg sem
stundar mastersnám í fjármálum.
Hann hefur einu sinni áður synt
til heiðurs Guðlaugi í Kaupmanna-
höfn. Einnig hefur hann synt í
Eyjum þar sem afreksins hefur
verið minnst á hverju ári síðan
1985 í Sundhöll Vestmannaeyja og
hefur Friðrik Ásmundsson, fyrr-
verandi skólastjóri Stýrimanna-
skólans, haldið utan um það.
Aðspurður hvort það sé ekki erf-
itt að líkja eftir afreki Guðlaugs
segir Magnús að það sé ómögu-
legt. „Það er ekki hægt að líkja
eftir þessu afreki eða aðstæðunum
sem Guðlaugur þurfti að ganga í
gegnum.“ - fb
Synda Guðlaugssund í Köben
SYNDIR 6 KÍLÓMETRA Magnús Berg
Magnússon og félagar synda í Kaup-
mannahöfn til að minnast afreks Guð-
laugs Friðþjófssonar.
Helga Lilja Magnúsdóttir
Aldur: 27 ára
Starf: Fatahönnuður
Búseta: 101 Reykjavík.
Fjölskylda: Foreldrar mínir
heita Lovísa Fjeldsted og Magnús
Böðvarsson.
Stjörnumerki: Krabbi.
Helga Lilja tók þátt í tískuvikunni í New
York á dögunum.
Hönnunarfyrirtækið Andersen &
Lauth hefur ákveðið að endurgera
gömul jakkaföt frá klæðskeraverk-
stæðinu A&L sem starfrækt var
frá árunum 1908 til 1975.
„Okkur langar að athuga hvort
ekki leynist enn fágæt eintök af
Andersen & Lauth jakkafötum í
fataskápum landsmanna. Það sem
við viljum gera er að endurgera
jakkafötin í sem nákvæmastri
mynd og taka inn eins og tvenn
slík jakkaföt í hverri línu. Við vilj-
um fá að skoða jakkafötin, mynda
þau og mæla svo hægt sé að sauma
eftir þeim,“ útskýrir Gunnar
Hilmarsson, annar eigenda And-
ersen & Lauth. Hann segir mikinn
fjölda karlmanna hafa keypt sér
jakkaföt frá fyrirtækinu á sínum
tíma og því sé hann vongóður um
að finna nokkur slík. „Pabbi minn
lét til að mynda sérsauma á sig
jakkaföt hjá A&L fyrir skírnina
mína og notaði þau svo næstu tutt-
ugu árin,“ segir Gunnar.
„Það er mikil saga sem fylgir
þessu nafni og margir eldri herra-
menn fá stjörnur í augun þegar
minnst er á klæðskeraverkstæð-
ið,“ segir Gunnar að lokum.
Þeim sem luma á gömlum jakka-
fötum frá fyrirtæk-
inu er bent á að hafa
samband við skrif-
stofu Andersen &
Lauth í síma 578-
1778. - sm
Endurgerir sígild íslensk jakkaföt
LEITAR UPPRUNANS Gunnar Hilmarsson
hjá Andersen & Lauth segir fyrirtækið
ætla að endurgera áratugagömul jakka-
föt frá klæðskeraverkstæðinu Andersen
& Lauth. Hér má sjá jakkaföt úr smiðju
klæðskeraverkstæðisins annars vegar og
ný jakkaföt frá Andersen & Lauth hins
vegar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Lau 12.3. Kl. 19:00
Mið 16.3. Kl. 19:00
Fim 17.3. Kl. 19:00
Lau 26.3. Kl. 19:00
Fim 31.3. Kl. 19:00 Síð.sýn.
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Sun 13.3. Kl. 13:30
Sun 13.3. Kl. 15:00
Sun 20.3. Kl. 13:30
Sun 20.3. Kl. 15:00
Sun 27.3. Kl. 13:30
Sun 27.3. Kl. 15:00
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Allir synir mínir (Stóra sviðið)
Sun 13.3. Kl. 14:00
Sun 13.3. Kl. 17:00
Sun 20.3. Kl. 14:00
Sun 20.3. Kl. 17:00
Sun 27.3. Kl. 14:00
Sun 27.3. Kl. 17:00
Sun 3.4. Kl. 14:00
Sun 3.4. Kl. 17:00
Sun 10.4. Kl. 14:00
Sun 10.4. Kl. 17:00
Sun 17.4. Kl. 14:00
Sun 17.4. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
Ö
Fös 18.3. Kl. 20:00 4. sýn
Lau 19.3. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 24.3. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 25.3. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 1.4. Kl. 20:00 8. sýn
Lau 2.4. Kl. 20:00
Fim 14.4. Kl. 20:00
Lau 30.4. Kl. 20:00
Brák (Kúlan)
Fös 18.3. Kl. 20:00 Fös 8.4. Kl. 20:00
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Sun 13.3. Kl. 20:00
Lau 19.3. Kl. 20:00
Sun 20.3. Kl. 20:00
Fim 24.3. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 25.3. Kl. 20:00
Sun 27.3. Kl. 20:00
Mið 30.3. Kl. 20:00
Lau 2.4. Kl. 20:00
Hedda Gabler (Kassinn)
U
U
U
Ö
Ö Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö U
U
Ö
Ö
Ö
U
U
Ö
í Perlunni 9.-13. mars
Veitingahúsið Perlan · Sími: 562 0200 · Fax: 562 0207
Netfang: perlan@perlan.is · Vefur: www.perlan.is
Heilsteikt öndHEIL ÖNDT
8.15 Morgunverður framreiddur
8.30 Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, ávarpar fundinn
8.40 Hrefna Friðriksdóttir, höfundur skýrslu um ættleiðingar á Íslandi:
Staða og framkvæmd ættleiðinga - er breytinga þörf?
9.05 Hörður Svavarsson, formaður Íslenskrar ættleiðingar:
Í upphafi var orðið. Í tilefni af skýrslu um ættleiðingarlöggjöfina
og framkvæmd ættleiðingarmála á Íslandi
9.25 Snjólaug Elín Sigurðardóttir, MA-nemi og kjörforeldri:
Fjölskyldur ættleiddra barna af erlendum uppruna
– fræðsla og stuðningur
9.40 Umræður
ÆTTLEIÐINGAR Á ÍSLANDI:
Í þágu hagsmuna barns
Innanríkisráðuneytið boðar til opins
morgunverðarfundar um ættleiðingar á Íslandi
miðvikudaginn 16. mars næstkomandi.
Fundurinn fer fram í Iðnó og stendur frá 8.15-10.00.
Hægt verður að kaupa morgunverð á staðnum fyrir 650 krónur.