Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 3
itmrinmgm.
Mánaða,rrit til stuðnings kirkju og lcristindómi íslandinga.
gtjið út af hinu ev. lút. kirkjuftlagi ísl. í Vestrheimx
33. ÁRG. WINNIPEG, MAÍ 1918 NR. 3
Kirkjuþingið.
Eins og- auglýst hefir verið, kemur kirkjuþing saman
í Pyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, miðvikudaginu 19.
Júní, og' verður sett kl. 11 f. h. Fer fyrst fram opinber
guðsþjónusta og altarisganga, sem ætlast er til að allir
kirkjuþingsmenn taki þátt í.
Eftir hádegi sama dag verða lesnar ársskýrslur em-
bættismanna og kosnir embættismenn fyrir komanda ár.
Að kveldi sama dags flytur séra Priðrik Hallgríms-
son fyrirlestur.
Að kveldi fimtudagsins flytur séra Kristinn Iv.
Ólafsson fyrirlestur.
Á föstudagskveldið verður söngsamkoma (concert)
í kirkjunni.
Eftir liádegi á laugardag verður skemtiför farin til
Gimli og hátíð haldin í Betel, gamalmenna-heimili kirkju-
félagsins.
A sunnudaginn verða guðsþjónustur á venjulegum
tírna og prédika aðkomnir prestar.
Að kveldi mánudagsins verða trúmála-umraeður.
Efnið sérstaka, sem rætt verður, er sakramentin. Séra
Hjörtur J. Leó flvtur ítarlegt erindi um það efni og
vorður erindi það upphaf umræðanna.
Þingfundir byrja kl. 9 f. li. alla daga nema fyrsta
daginu.
Guð gefi, að þing jietta verði kirkju Drottins Jesú
Krists til blessunar og heilögum Guði til dýrðar.