Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 15
77 og af ásettu ráði til orðin, eins og þögn í kirkju. Þögnin var sprottin af eftirtekt og engu öðru. “Hópurinn, sem þarna var kominn, var sjálfsagt eins og fólk er flest. Sumir liöfðu óefað slæðst þangað inn af tómri forvitni. Aðrir voru líklega viðbúnir von- brigðum, sem fles'tir verða fyrir, þegar þeim eru sýndir biblíuviðburðir á leiksviðinu. Sumir, ef til vill, voru guð- rækilega sinnaðir. Yera má, að sumir hafi verið náms- menn. En svo mikið má þó fullyrða, að ef einhverjir í hópnum fóru heim jafngóðir og með sömu tilfinningum innanbrjósts, eins og þegar þeir komu, þá hafa þeir hinir sömu ekkert rúm í hjartanu fyrir neitt annað en það, sem þeir sjá fyrir sér daglega á leikhúsinu eða á bænafundum eða í skólaherberginu. Ófriðurinn hefir kent mönnum að nieta spurninguna miklu, sem mannshjartað hefir á öll- um öldum verið að þreyta við. Mönnum er þannig inn- anbrjósts nú á dögum, að þeir geta metið annað eins ljóð eins og í Jobsbók. 1 þrautum Servíu og Belgíu, í mætti þeim hinum óskiljanlega, sem ófyrirleitin hernaðar- klikka hefir til að leiða hóflaust böl yfir heim allan, í tak- markalausu hernaðar-þoli Frakklands — í öllu þessu blasir við mönnum sama ráðgátan, sem Job og vinir hans forðum liöfðu að umtalsefni”. G. G. Skynsamleg guðsdýrkun. fRæða) “Svo áminni eg yður, bræður, að þér vegna miskunnar Guðs, ðjóðið fram líkami yðar að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn, °ð er það skynsamleg guðsdýrkun af yðar hendi”.—Rómv. 1, 12. Mörgum nöfnum er það nefnt, og öllum ófullkomnum, aflið eilífa, sem knýr sálir mannanna áfram til hæðanna. Hvort menn kalla það trú, eða eitthvað annað, þá er það, eins og lífið sjálft, ofar skilningi og skilgreining. Má vera að það mætti nefna eld, goðs loga í brjóstum manna. Hvað sem það er, þá er það, sem aðgreinir mann frá skepnu og iengir mann við Guð. pað er meira og betra en lífið. pað á skilt við sjálfan Guð. þetta eilífa, guðlega í sál mannsins er sífelt að leita að

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.