Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 9
71 dauðahættu stödd, að verða ambátt böðlauna í Berlín, verða féþúfa gæðinga keisarans, þeirra er hann liefir heitið einkaréttindum til að rupla og ræna í Canada, þeg- ar hann sé búinn að sigra bandamenn í Evrópu. Cariadá er í þeirri liættu, að sæta sömu kjörum og Belgía, veiti hún að unnum þýzkum sigri nokkurt viðnám hinum ham- stola Húnum: borgir hennar verði brendar, bygðir henn- ar eyddar, konur hennar svívirtar, börn henngr krossfest. Bandaríkin eiga það á hættu, að frá Jieim víki frægð og frelsi, Bunker Hill verði til athlægis, og Gettysburg til gamans ofbeldinu frá Pottsdam. Menn eru farnir að sjá hættuna og tala um hana. Menn eru farnir að gera sér grein fyrir því, að ef verja á land og þjóð og varðveita frelsi og farsæld komandi kynslóða, þá verður nú að taka á af öllum kröftum. Mönn- um er farið að skiljast það, að svo geti farið, að menn verði að leggja allar eigur sínar í sölurnar, jafnframt því sem óteljandi fjöldi manna leggur lífið í sölurnar. Og menn eru ákveðnir í því, að þola alt og líða alt til þess að glata ekki sjálfstæði þjóðarinnar og sóma sín- um. Menn eru við því búnir að leggja alt í sölurnar fvrir hugsjónir þær, sem barist er fyrir. Og menn eru öruggir um sig-ur. Það er að verða einasta mál allra góðra borgara í hmdinu, að heyja þetta stríð og vinna sigur sem fyrst. Til þess sameina menn krafta sína. Sérmál manna eru látin bíða. Einkum er það í Bandaríkjunum, að allir flokkar sameinast nú. Það er látið einu gilda, af livaða þjóðernisbergi menn eru brotnir upphaflega, nú eru allir jafnt Ameríkumenn. Ekki er í landinu nema ein þjóð og hún vill berjast sem einn maður. Sameiginleg hætta ut- an að sameinar öll börn landsins í eina þétta bræðra- fylking. Ef til vill eru það ekki sízt þeir, sem hingað lmfa flutt úr öðrum löndum, eða eru afkomendur manna, sem hingað fluttu úr öðrum löndum, sem nú reynast þjóðinni hollir. Þeir finna til þess, hvað þeir eiga landinu að þakka. Hér breiddi landið faðminn móti þeim, þeim var veittur aðgangur að öllum réttindum borgaranna og allar

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.