Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 32

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 32
94 an leggur sérstaka áherzlu á: kristindómurinn er fólginn í lííssam- bandi viö frelsarann. Hann veitir trúuðum lærisbeini sjálfan sig, bókstaflega, vekur í brjósti honum nýtt líf, sem beinlinis er vakið aí eigin lífi hans. I’ú ert kristinn, þegar Kristur sjálfur lifir í þér og þú í honum. Frelsarinn veitir oss sjálfan sig í sakramentinu; er þar sannarlega nálægur meö lífskraft sinn og kærleika. Þú meðtekur ekki dautt hold og blóð hans, heldur sjálfan hann, hinn lifandi lausn- ara, í heilagri kvöldmáltíö. Þetta er hjartaö, lífið í hinni lútersku kenningu um sakramentiö, sem svo oft er ömurlega misskilin. Hún byggist eigi aöeins á oröum Krists í ritningunni, heldur á trúar- reynslu kristinna manna. Trúaöir menn í öðrum kirkjudeildum við- urkenna það hjartanlega, að sakramentið sé meira en líkingarfull minningar-athöfn, að í því sé fólginn heilagur, guðlegur leyndar- dómur, og að mannssálin þiggi frelsarann sjálfan, þegar neytt er heilagrar kvöldmáltíðar. — Sumum finst, að þeir sé ekki nógu rétt- látir, nógu hreinhjartaðir eða trúarsterkir til þess að mega vera til altaris. Þeim mönnum ber að minnast þess, að það eru einmitt synd- ugir, ófullkomnir menn, sem Kristur er sífelt að leita að og vill líkna. Verkefni: 1. Síðasta páskamáltíð Jesú. 2 . Heilög kvöldmáltíð : innsetnitigin; orð Jesú og orð Páls postula um það efni (sjá, hliðsjón- ar-kaflana) ; þýðing hennar fyrir oss. XX. IÆXÍA. — 1«. Jt'XÍ. Jesús á krossimiin.—Mark. 15, 22-39. Minnistexti:—Sannarlega hefir þessi maður verið Guðs-sonur.— Mark 15, 39. Umræðuefni:—Jesús deyr fyrir syndir vorar. Les til hliðsjónar: Matt. 27, 32-61; Lúk. 23, 26-56; Jóh. 19, 16-42; Róm. 4, 25; 5, 11: 1. Pét. 2, 21-25. Eftir kvöldmáltíðina fór Jesús með postulunum ellefu austur fyrir Jerúsalem, yfir um Kedron-gil og inn í grasgarð- inn Getsemane í vestur-hlíð Olíufjallsins. Þar hafði hann oft beðist lyrir áður með lærisveinunum. í garðin.um leið hann óumræðilega sálarkvöl og baðst fyrir, þar til hermanna-hópur frá landstjóranum og æðstu prestunum, undir leiðsögn svikarans Júdasar, tók hann höndum nálægt miðnætti um nóttina. Hann var fyrst færður til prestahöfðingjanna Hannasar og Kaífasar, yfirheyrður af þeim síð- arnefnda og dæmdur til dauða. Öldungaráðið var kallað saman í dögun um morguninn til þess að staðfesta þann dóm. Síðan var hann færður til Pílatusar, landstjórans rómv'erska, sem eftir margs- konar undanbrögð lét að síðustu undan prestahöfðingjunum og skríln- um, dæmdi Jesúm til dauða móti betri vitund og lét krossfesta hann. Það mun hafa verið á föstudegi, 7. apríl árið 30, að Jesús var kross- festur. Hann hékk á krossinum í sex stundir, frá kl. 9 um morgun- inn til kl. 3 um daginn. Staðurinn var ikallaður Golgata eða “Ha.us- kúpan". Það var grjót-hóll eða klöpp, skamt fyrir utan borgarvegg-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.