Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 5

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 5
67 ingarband megi á komandi tíð styrkjast og treystast með íslendingum beggja megin hafsins og |>að leiða til far- sællar samvinnu að sameigilegum kristilegum áhugamál uni guðs ríki til eflingar á meðal vor, kveð eg yður, árnandi kirkjufélaginu, og' kristni útfluttra Islendinga vestan hafs yfirleitt, náðar og friðar Guðs í Drotni vor- um Jesú Kristi. Bróðurlegast, Jón Helgason. Til forseta hins ev. lút. kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi, séra Björns B. Jónssonar, Winnipeg.” Tilskipun Wilson forseta um almennan bænadag. I “Þar eð alþingi Bandaríkja liefir 2. dag Apríl-mán- aðar síðastliðinn gjört svohljóðandi þingsályktun: ‘ Öldungadeild þingsins (með samþykki fulltrúa- deildarinnar) ályktar, — þar sem það er sérstök skylda á stríðstímum að viðurkenna með auðmýkt og lotningu yfirráð almáttugs Guðs og biðja um hjálp hans og varðveislu —, að skora á, og skorar hér með virðingarfylst á, forseta Bandaríkjanna, að tilskipa dag' til almennrar syndajátningar, föstu og bæna- gjörðar, sem allur lýður landsins haldi hátíðlega og guðrækilega til þess, að ákalla almáttugan Guð, og biðja hann að blessa málstað vorn, varðveita her- sveitir vorar, og gefa bráðlega þjóðum jarðarinnar réttlátan og varanlegan frið’; Og þar eð það hefir ávalt verið lieilög venja íbúa Bandaríkjanna, að biðja með auðmjúku bænaákalli um handleiðslu almáttugs Guðs sameiginlega; Þá ákveð eg, Woodrow Wilson, forseti Bandaríkja 1 Vesturheimi, að fimtudagurinn, þrítugasti dagur Maí- mánaðar, dagur, sem þegar er helgaður fyrir heilagar og dý rmætar endurminningar, sé haldinn sem almennur haenadagur, með syndajátning og föstuhaldi, og eg skora á alla samborgara mína, hvaða trúflokki, sem þeir til-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.