Sameiningin - 01.05.1918, Side 6
68
heyra og hvaða trúarjátning, sem þeir hafa, að safnast
saman á þeim degi á venjulegum guðsþjónustustöðnm
sínum, og þar — og sömuleiðis í heimahúsnm — hiðja al-
máttugan Guð að fvrirgefa oss, sem þjóð, syndir vorar
og yfirsjónir, að hreinsa hjörtu vor, svo vér þekkjum Og
elskum sannleikann, viðurkennum og verjum alt, sem er
réttlátt og göfugt, og áformum aðeins réttmætar athafn-
ir og réttláta dóma, er samrýmast megi vilja hans; og sár-
bænum hann að gefa liersveitum vorum sigur þar sem
þær berjast fyrir frelsi, gefa vísdóm þeim, sem ráða mál-
um vorum á þessum dimmu dögum stríðs og nauða, og
gefa öllu fólki stöðuglyndi og þrek til fórnargjörðar í
þarfir þess, sem er gott og réttlátt, og veita oss um síðir
þann frið, sem fullnægi hjörtum manna og sé grundvall-
aður á miskunsemi, réttlæti og góðvild.
Þessu til staðfestingar rita eg nafn mitt og læt setja
hér innsigli Bandaríkjanna.
Dagsett í District of Columbia, ellefta dag Maí mán-
aðar, á nítján-hundruð-og-átjánda ári Drottins vors og
hundrað-fertugasta-og-öðru aldursári Bandaríkjanna.
• Woodrow Wilson.”
,,The Canadian Lutheran Commission for Soldiers’
and Sailors’ Welfare."
Skýrt hefir verið frá því í Sameiningunni, að á síð-
asta hausti var í Bandaríkjunum stofnað allsherjar
bandalag lútersku kirkjufélaganna þar í landi til kristi-
legs líknarstarfs meðal hermanna Bandaríkjanna, lieima
og erlendis, á sjó og landi. Lítillega hefir og í blaðinu
verið skýrt frá hinum mikla og dýrmæta árangri þess
starfs, sem lúterska kirkjan í Bandaríkjunum liefir unnið
og hlotið fvrir lof alþjóðar og sérstaka viðurkenningu
landstjórnarinnar. Er það til marks um ]>að, hve vin-
sælt það starf er hjá alþýðu þar syðra, að þegar stjórn
Bandalagsins bað lúterskt fólk í Bandaríkjunum, að
skjóta saman fé til starfsins, að upjihæð 750,000 doll., þá
kom saman á einni viku nærri hálf önnur miljón dollara.