Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 10

Sameiningin - 01.05.1918, Blaðsíða 10
72 menningarstofnanir stóðn þeim opnar. Hér fundu allar ])jóðir sameiginlegt heimiii og hér fengu allir að njóta sín og afla sér og sínum farsældar í frjálsu landi. Og þeir, sem hér eru bornir og barnfæddir, elska landið sem hörnin móður sína. Þegar svo er komið, að landi og þjóð er hætta búin af yfirgangi erlends ofbeldis, þá rís hver maður upp til varnar og er fús að leggja bæði fjör og fé í sölur fvrir landið sitt. Alt annað gleymist, alt annað hverfur á þessum örlagaþrungnu stundum. Þrautir þær, sem nú leggjast svo þungt á menn, væru óbærilegar, ef ekki væri fyrir þá samúð, sem er manna á milli. Menn líða hver með öðrum og hver styrkir annan. Það reynir hver um sig að bera sem bezt sína harma og \'ora öðrum til gleði í sorgunum. Þakkir eiga þeir menn og þær konur skilið, sem gefa sig við því, að lina þraut- irnar og liðsinna hinum bágstöddu. Og nú reynir á karl- mensku og styrk manna. Það er óvíst, að rneir þurfi á karlmensku að halda á vígvellinum sjálfum, en hér heima fyrir. Og liollusta manns við þjóð og land prófast áreið- anlega ekki síður heima hér en “fyrir handan”. Til liafa verið þeir rnenn, nú eru þeir víst ekki margir orðnir, sem liafa vítt kirkjuna fyrir það, að skifta sér af stríðinu og hvetja menn til skylduræ'kni og hollustu við landið. Það mun þó verða kirkju þessa lands til ævarandi heiðurs, sá þáttur sem hún hefir átt í stríði þesSu. Kirkjan biður engrar afsökunar á því, að hafa styrkt menn í stríðinu við hin djöfullegu öfl ranglætis og ofbeldis. Kirkjan þarf engan kinnroða að bera fyrir því, að Jiún hefir hvatt menn til þess, að slá morðtólin úr höndum þeirra, sem með þrælmensku hafa níðst á varn- arlausu tolki. Þegar litið er til Belgíu, Armeníu, Sýr- lands, liygðanna herteknu á Prakklandi og annara þeirra landa þar sem saklaust fólk hefir verið myrt umvörpum og ]>au liryðjuverk framin, að hverjum manni hrís hugur við, þá er meira að undrast það, að kristnir menn liafa ekki fyr og með meira krafti látið til sín taka og rétt lijálparhönd hinum undirokuðu. Er það ])ó einn aðal- þáttur hins kristilega kærleika, að leggja líf og blóð í söl- ur fvrir bágstadda.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.