Sameiningin - 01.05.1918, Side 24
86
RADDIR FRÁ ALMENNINGI
Deild þessa annast séra G. Guttormsson.
NOKKRAR SPURNINGAR
frá maniii j Saskatchewan.
Sp. í tuttugasta og fyrsta kapítula fjórðu Mósebókar, fjórtánda
versi, standa þessi orÖ: “Þess vegna er í bókinni um bardaga
Drottins minst á Vaheb í Súfa og Arnons læki”. Er þaö mögulegt
nú á tímum að vita hvaða bók hér er átt viö?
Sv. Bókarinnar er hvergi getið nema hér. Fróðir menn geta
sér þess til, að hún muni hafa verið gamalt kvæðasafn, sigursöngvar
eftir einhver þjóðskáld Israels, ortir á eyðimerkur-dvölinni eða
litlu siðar. Tilvitnunarorðin eru óljós, og ])ví ekki gott að segja,
hvernig á þeim stendur; en þó er ekki ólíklegt, að til þessarar
gleymd.u bókar sé vitnað hér til stuðnings landlýsingunni i næsta
versi á undan. Sé svo, þá er þetta innskotsgrein, sem ekki hefir
staðið í frumritinu, heldrr komist inn í textann all-Iöngum tima eftir
daga Móse. þegar Iandamæri Amórs og Móabs voru ekki eins og hér
segir og staðháttalýsingin virtist því þurfa skýringar við. Þetta er
auðvitað tilgátan ein, og verður henni þvi ekki haldið til streitu, ef
önnur finst sennilegri.
Sp. Enn fremur stendur, í sania kapitula, tuttugasta og sjöunda
versi: “Þess vegna sagði skáldið: Komið til Hesbon! Síhons
borg skal byggja og gjöra rambvggilega!” Hvaða skáld er hér átt
við? Og hv'aða borg er það, sem hér er nefnd?”
Sv. Hér stendur í nýju ])ýðingunni: “Fyrir þvi sögðu háð-
skáldin: Komið til Hesbon! Endurreist og grundvölluð verði borg
Síhons!” Hér er auðsjáanlega vitnað í gamalt kvæði, ort út af
sigurvinningum ísraels, sem frá var skýrt i versunum á uncTan. Orð-
unurn er beint að Amóringum, að því er virðist, eins og til að storka
þeim. Það var gamall siður hjá fsraelsmönnum, að syngja slík Ijóð
eftir sigurvinningar og aðra stórviðburði fsjá 2. Mós. 15 og Dóm. 5).
— Síhons borg og Hesbon er sama borgin. “Hesbon var borg Sihons
Amórítakonungs” (26 v.). Hún á því ekkert skylt við Sionsborg
eða Jerúsalem, sem kend er við hæðina Zíon.
Sp. Getur nokkur bygt nýja kirkju, nýja Jerúsalem eða nýtt
musteri — eg á við í æðstu merking orðanna — nema Jesús Kristur?
Sv. Nei.
Sp. f>á stendur í ])ritugasta versinu: “Ljós þeirra er slokknað
frá Hesbon til Dibon: vér eyddum landið alt að Nófa, alt til Medíba !”
Hvaða ljós er hér átt við? Er þaö blessun og vernd Guðs, sem hér
er nefnd ljós?
Sv. Nýja þýðingin er talsvert öðru visi á þessum stað: “Vér
skutum á þá; gjöreydd var Hesbon alt til Díbon; og vér fórum her-